Viðskipti innlent

Mikil uppsveifla á fasteignamarkaðinum

Mikil uppsveifla er í gangi á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu. Í síðustu viku var fjöldi þinglýstra kaupsamninga í borginni 132 talsins.

Þetta eru tæplega 30% fleiri samningar en nemur meðaltalinu á viku síðustu þrjá mánuði sem eru 104 samningar. Þá var veltan í síðustu viku rúmlega 3,9 milljarðar króna sem er einum milljarði króna meiri velta en nemur vikumeðatalinu síðustu þrjá mánuði að því er kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×