Stjórnvöld í Liechtenstein semja við Skýrr 18. maí 2011 17:55 „Samningurinn við Liechtenstein er hluti af markvissri útrás Skýrr," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. Mynd/Pjetur
Skýrr hefur undirritað samning við Liechtenstein um smíði á svokölluðum SIS-II-kerfishluta fyrir Schengen-upplýsingakerfi Liechtenstein. Þetta er stór samningur sem fjöldi hugbúnaðarsérfræðinga hjá Skýrr mun vinna að næsta árið, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Umrætt kerfi er lykilkerfi í hverju Schengen-aðildarríki og veitir upplýsingar um eftirlýsta aðila, vopn, ökutæki og fleira á landamærastöðvum Schengen ríkjanna. „Samningurinn við Liechtenstein er hluti af markvissri útrás Skýrr, en fyrirtækið hefur nú þegar fjölmarga erlenda viðskiptavini og um 500 manns starfa hjá tveimur dótturfyrirtækjum okkar í Noregi og Svíþjóð. Skýrr-fjölskyldan telur nú tæplega 1.100 starfsmenn í fjórum löndum og erlendar tekjur eru mikilvægur hornsteinn í rekstri fyrirtækisins. Verkefni sem tengjast Schengen-samstarfinu eru ákveðinn gæðastimpill á starfsemi Skýrr og það sýnir sig nú hversu mikilvægar þær eru, alþjóðlegar gæða- og öryggisvottanir okkar gegnum ISO 9001 og 27001,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. Skýrr hefur unnið með stjórnvöldum í Liechtenstein allt frá árinu 2009 við innleiðingu ýmissa kerfa sem notuð eru við landamæraeftirlit og meðhöndlun vegabréfsáritana. Skýrr, og áður Kögun og VKS sem nú eru hluti af Skýrr, hafa auk þess sinnt ráðgjöf og þjónustu við upplýsingakerfi Íslands sem tengjast Schengen samstarfinu í fjölda ára.Upplýsingakerfið og barátta gegn glæpum Liechtenstein undirritaði samkomulag um aðild að Schengen samstarfinu árið 2008 og er nú á lokastigum inngönguferlisins. Samvinna Schengen-ríkjanna byggir á samningi sem upphaflega var undirritaður í bænum Schengen í Lúxemborg árið 1985. Kjarni Schengen-samstarfsins er annars vegar að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri landamæri samstarfsríkjanna og hins vegar að styrkja baráttuna gegn alþjóðlegri afbrotastarfsemi. Til þess að tryggja framkvæmd Schengen-samningsins hefur verið komið á fót sameiginlegu upplýsingakerfi til þess að gera yfirvöldum aðildarríkjanna mögulegt að hafa aðgang að upplýsingum um fólk og hluti vegna landamæravörslu og annarrar lög- og tollgæslu, auk aðgangs að upplýsingum sem nota þarf við útgáfu vegabréfsáritana og dvalarleyfa. Í kerfinu er lögð mikil áhersla á persónuvernd og gagnaöryggi.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira