Skuldabréfakaup Seðlabankans vekja eftirtekt Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. desember 2011 12:15 Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Undanfarna daga hefur Seðlabanki Íslands keypt ríkisskuldabréf fyrir um það bil 16 milljarða króna að nafnverði, eftir því sem greint er frá í Morgunkorni Íslandsbanka. Að stærstu leyti er um að ræða stutt ríkisbréf en bankinn keypti fyrir 3,4 milljarða króna að nafnverði í RIKB12, 6,3 milljarða króna í RIKB13 og 2,8 milljarða króna í RIKB16. Þá keypti Seðlabankinn einnig fyrir 3,7 milljarða króna í RIKB25. Greining Íslandsbanka segir að þessi viðskipti hafa vakið eftirtekt þar sem að Seðlabankinn hefur hingað til ekki fjárfest í ríkisskuldabréfum, þó bankanum sé það heimilt samkvæmt lögum. Þá hafi Seðlabankinn ekki sent frá sér neina tilkynningu sem skýri frá þessum viðskiptum og samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum sé alls ekki víst að nein tilkynning verði send út. Þetta hafi valdið nokkrum titringi á skuldabréfamarkaði við opnun í morgun, en þegar þetta er ritað hefur krafa lengri flokka óverðtryggðra ríkisbréfa hækkað um 1-7 punkta frá dagslokum í gær. Ætlun bankans hafi þó varla verið að valda ölduróti á skuldabréfamarkaði og má ætla að þeir muni hafa það til hliðsjónar þegar og ef þeir selja þessi bréf að nýju. Seðlabankinn hefur veitt Íslandsbanka þær upplýsingar að þessi aðgerð tengist afléttingu gjaldeyrishafta. Seðlabankinn vildi ekki veita fréttastofu frekari upplýsingar um málið, nema að keypt hafi verið af erlendum aðila. Íslandsbanki segir að málið vekji eftirtekt ekki síst vegna þess að hingað til hafi afnám gjaldeyrishafta verið opið ferli.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira