Viðsnúningur hjá Kópavogsbæ, milljarður í plús 10. maí 2011 17:53
Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð 988 milljónum krónum betri en áætlunin. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi bæjarins fyrir árið 2010. Hann fer til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að með áframhaldandi hagræðingu og útsjónarsemi tókst að halda uppi þjónustustigi í bænum á árinu. Tekjur bæjarfélagsins urðu heldur hærri en áætlað var en íbúum fjölgaði um 383 milli ára, eða í 30.697 í árslok 2010. Aðrir þættir sem hafa áhrif á jákvæða rekstrarútkomu eru gengishagnaður erlendra langtímalána sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun og lækkun lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir hækkun skuldbindingarinnar. Útgjaldaliðir vegna félags-, fræðslu- og atvinnumála urðu hins vegar nokkuð hærri en áætlað hafði verið, en það skýrist helst af því efnahagsástandi sem ríkti á árinu. Má þar nefna að auknu fé var ráðstafað til atvinnuskapandi verkefna, einkum til sumarvinnu ungmenna. Eigið fé bæjarfélagsins í árslok 2010 nam rúmlega 14 milljörðum króna en var 10,4 milljarðar árið á undan. Eiginfjárhlutfallið fór upp í 24%.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira