ÍLS getur ekki boðið sömu kjör og Landsbankinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. maí 2011 14:21 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ekki sé hægt að leggja meira á Íbúðalánasjóð.
Íbúðalánasjóður stendur ekki vel og vart á hann leggjandi að krefjast þess að hann bjóði sömu úrræði og Landsbankinn býður viðskiptavinum sínum. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í dag. Landsbankinn tilkynnti í gær að hann byði viðskiptavinum þríþættar aðgerðir til að bregðast við skuldum heimilanna. Meðal annars var 20% vaxtaafsláttur. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherrann út í málið í dag. Meðal annars spurði hann hvort forsætisráðherra myndi beita sér fyrir því að Íslandsbanki og Arion banki færu sömu leið. Jafnframt hvort hún myndi tryggja að Sparisjóðirnir og Íbúðalánasjóður færu þessa leið. Jóhanna sagðist fagna því að Landsbankinn hafi séð sér fært að fara þessa leið. Hún sagði eðlilegast að þeir viðskiptabankar sem eru í eigu erlendra kröfuhafa skoði sjálfir hvort þeir treystu sér að fara þessa leið. „Varðandi Íbúðalánasjóð, þá stendur hann ekki vel. Hann fór eins langt og hann gat þegar við fórum í þessar aðgerðir - þessa 110% leið sem ég tel að sé að skila mjög miklu vegna þess að við þurfum að láta verulegar fjárhæðir í þann banka til að styrkja eiginfjárstöðu bankans,“ sagði Jóhanna. Hún sagði að ef meira yrði á Íbúðalánasjóð lagt myndi það koma niður á velferðarkerfinu og þá kannski þessu sama fólki sem býr við erfiða stöðu vegna skulda heimilanna. Jóhanna hvatti fólk til að nota þau úrræði sem í boði eru. Greiðsluaðlögun væri að skila fólki verulega miklu. Hún sagði að um 2400 hefðu sótt um greiðsluaðlögun og 600 fengið úrlausn sinna mála. Þá væri verið að vinna úr 1900 umsóknum vegna greiðsluaðlögunar.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira