Viðskipti innlent

Eyrir Invest selur allt sitt í Össuri fyrir 9 milljarða

Eyrir Invest hefur selt alla eignarhluti sína í Össuri hf. á genginu 193 sem jafngildir 8,75 dönskum kr. á hlut.  Salan nemur því tæpum níu milljörðum kr.

Í tilkynningu segir að fyrir viðskiptin átti Eyrir 46,5 milljónir hluta í Össuri eða sem jafngildir 10,2% af heildarhlutafé en á eftir viðskiptin engan hlut í félaginu. Tilgangur sölunnar er að styrkja fjárhag Eyris enn frekar og losa um fjármuni til að beina í ný verkefni þar sem Eyrir verður leiðandi fjárfestir.

„Eyrir hefur verið hluthafi í Össuri frá 2004 og stutt dyggilega við vöxt félagsins á undanförnum árum, en lengst af hefur Eyrir átt 20-25% hlut Össuri.  Fjárfestingin í Össuri hefur verið farsæl, velta Össurar á síðustu 7 árum hefur þrefaldast og arðsemi farið vaxandi.  Össur er nú markaðs- og tæknileiðtogi á sínu sviði á heimsvísu.  Stjórnendur og starfsfólk Össurar eiga mikið lof skilið fyrir þann árangur sem þegar hefur náðst og teljum við framtíð félagsins bjarta,“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest í tilkynningunni.  

„Fjárhagslegur styrkleiki Eyris er mikill og erum við að kanna nýja og spennandi fjárfestingarkosti hér á landi þar sem við verðum leiðandi fjárfestar auk þess sem rekstrarfélög okkar eru að auka umsvif sín á heimsvísu með innri og ytri vexti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×