Segir skattgreiðendur borga brúsann 27. maí 2011 17:03 Höskuldur Ólafsson segir að skattgreiðendur muni á endanum borga brúsann af endurgreiðslu vaxta.
Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion banka, segir að bankinn muni skoða þær hugmyndir sem Landsbanki Íslands kynnti fyrir viðskiptavinum sínum í gær. Í hugmyndunum felst meðal annars 20% vaxtaafsláttur fyrir lánþega bankans. „Vissulega munum við skoða þetta og meta næstu skref. Hingað til höfum við unnið eftir samkomulagi milli ríkis, lánastofnanna og lífeyrissjóða sem kynnt var í desember. Þeirri vinnu hefur miðað ágætlega hjá bankanum og því starfi munum við halda áfram. Hluti af þeim úrræðum sem Landsbanki Íslands hefur nú kynnt er sambærilegur lausnum sem Arion banki hefur boðið viðskiptavinum sínum í tæp tvö ár og reynst hafa vel,“ segir Höskuldur.Hugsi yfir vaxtaafslættinum Hann segir að endurgreiðsla vaxta virðist hins vegar vera ný almenn aðgerð. Það sé alveg ljóst að slík aðgerð sé gríðarlega kostnaðarsöm og það séu eigendur Landsbankans, skattgreiðendur, sem á endanum muni bera kostnaðinn af þessari aðgerð, sem nýtist um 30 þúsund af viðskiptavinum Landsbankans. „Við erum hugsi yfir þessu og höfum skilning á óskum okkar viðskiptavina um að þeim standi þetta einnig til boða. Því er ekki að neita að þetta setur ákveðna pressu á önnur fjármálafyrirtæki sem og lífeyrissjóði landsins. Við bíðum einnig eftir viðbrögðum Íbúðalánasjóðs sem eins og Landsbankinn er í eigu ríkisins,“ segir Höskuldur.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Sjá meira