SA: Nýjar vegabætur skapa hundruð starfa 19. janúar 2011 08:50
Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins (SA). Þar segir að umfangsmiklar vegaframkvæmdir séu eitt þeirra stóru og mikilvægu mála sem eru uppi á borðum samningsaðila í yfirstandandi kjaraviðræðum og kalla á aðkomu ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja á það höfuðáherslu að stórum fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu verði komið á skrið og í nýlegri aðgerðaáætlun ASÍ er lagt til að stórum framkvæmdum í samgöngumálum verði hrint í framkvæmd með stofnun félags í eigu ríkissjóðs sem taki lán hjá langtímafjárfestum til langs tíma. Í framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar í desember sl. er fjallað um þessi mál en þar segir að ríkissjóður muni bjóða út skuldabréfaflokk og afla þar með lánsfjár til að standa undir framkvæmdum næstu 5 ár fyrir andvirði allt að 40 milljörðum króna. Þungi framkvæmdanna verði á árunum 2012, 2013 og 2014, en á árinu 2011 er reiknað með framkvæmdum fyrir allt að 6 milljarða króna. Hin árin yrði upphæðin nær 10 milljörðum, en töluvert lægri árið 2015. Alþingi hefur nú þegar veitt heimild til stofnunar hlutafélaga annars vegar um framkvæmdir á Suðvesturhorninu og hins vegar um Vaðlaheiðargöng. Ríkið mun veita báðum þessum félögum sérleyfi til framkvæmda og gjaldtöku. Í ljósi þessa er mikilvægt að hefja framkvæmdir sem allra fyrst eða undirbúning þeirra.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira