Vísir hf. kaupir búnað frá Marel 13. júlí 2011 10:22 Jón Þór Hallgrímsson, Andrés Óskarsson, Pétur Hafsteinn Pálsson, Páll H. Pálsson, Óskar Óskarsson og Guðjón Stefánsson við undirritun samningsins.
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Vísir hf., sem er með höfuðstöðvar í Grindavík, hefur undirritað samning um kaup á vinnslubúnaði frá Marel í allar fjórar landvinnslueiningar sínar. Í tilkynningu segir að um sé að ræða vinnslulínu, skurðarvélar, samvalsflokkara, hráefnisflokkara og vogir, ásamt Innova hugbúnaði. Samningurinn er mikilvægur áfangi fyrir báða aðila. Fyrir Vísi er mikilvægt að nýta sér ávallt nýjustu tækni sem völ er á hverju sinni. Fyrirtækið rekur útgerð og landvinnslu á Íslandi, auk þess að taka þátt í sjávarútvegi erlendis. Umfang fyrirtækisins er því mikið og mikilvægt að hafa sem besta yfirsýn og eftirlit með framleiðslunni. Fyrir Marel er hér um að ræða stærstu einstaka sölu á búnaði til íslensks sjávarútvegsfyrirtækis. „Við höfum mjög góða reynslu af samstarfi við Marel þegar kemur að tækja- og hugbúnaði. Marel þekkir þarfir sjávarútvegsins og það endurspeglast í virkni og gæðum búnaðarins. Okkar markmið er að byggja á traustum vinnslu- og hugbúnaði sem er í stöðugri þróun og getur fylgt okkur inn í framtíðina. Við teljum Marel uppfylla þær kröfur og því veljum við búnað frá Marel,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson, forstjóri Vísis í tilkynningunni. Stærstur hluti vinnslubúnaðarins verður settur upp í starfsstöð Vísis á Húsavík til endurnýjunar á eldri búnaði en einnig verður settur upp búnaður á Djúpavogi og Þingeyri. Nýi búnaðurinn mun bæta mjög alla aðstöðu starfsfólks ásamt því að auka framleiðslugetu og nýtingu í framleiðslu á ferskum fiski til útflutnings. Með þessum samningi er Vísir hf. kominn með Innova hugbúnað frá Marel í allar sínar landvinnslueiningar til notkunar við gæða- og vinnslueftirlit.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira