Gjaldeyrisútboð Seðlabankans í tilteknum farvegi 13. júlí 2011 11:47
Niðurstaða í öðru gjaldeyrisútboði Seðlabankans til eigenda aflandskróna var að mörgu leyti í samræmi við útkomu fyrsta útboðsins, og virðist sem þessi þáttur í afléttingu gjaldeyrishafta sé kominn í tiltekinn farveg, hvað varðar verð, magn og tíðni útboða næsta kastið. Það hlýtur að teljast jákvætt, en ljóst má þó vera að fleiri þættir þurfa að koma til svo draga megi nægilega mikið úr lausum krónueignum erlendra aðila til þess að hægt sé að ráðast í almenna afléttingu hafta. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í útboðinu bárust alls tilboð að fjárhæð 52,2 milljarða kr. og var tilboðum tekið fyrir 14,9 milljarða kr., sem var í samræmi við markmið Seðlabankans. Lágmarksverð samþykktra tilboða var 215 kr. á hverja evru líkt og í fyrsta útboðinu. Meðalverðið nú var hins vegar nokkru lægra en þá, 216,33 kr. á móti 218,89 í fyrsta útboðinu. Seðlabankinn tók tilboðum yfir lágmarkinu að fullu, en tilboð sem voru jöfn lágmarksverðinu voru samþykkt hlutfallslega sem nam 44% af upprunalegri fjárhæð. „Spyrja má hvers vegna bankinn kaus að taka síðarnefndu tilboðunum aðeins að hluta, fremur en að hækka fjárhæð tekinna tilboða. Vera má að hann vilji stilla framboði króna í hóf í seinni legg viðskiptanna sem fyrirhugaður er í ágúst, en þá munu lífeyrissjóðir væntanlega kaupa verðtryggð ríkisbréf sem samsvarar þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn fékk í útboði gærdagsins og greiða fyrir með gjaldeyri. Þannig aflar bankinn aftur þess gjaldeyris sem greiddur verður úr forða hans fyrir aflandskrónurnar samkvæmt útboði gærdagsins,“ segir í Morgunkorninu. „Eins og í fyrsta útboðinu bauðst ríkissjóður til þess að taka við greiðslum fyrir gjaldeyri eftir útboð gærdagsins í formi ríkisvíxla og ríkisbréfa með gjalddaga fyrir árslok 2013 á kjörum sem í stórum dráttum endurspegluðu markaðskjör. Í tilkynningu Lánamála ríkisins í morgun kemur fram að enginn kaupenda í útboðinu í gær nýtti sér þennan rétt. Tekin tilboð virðast því öll hafa verið frá þeim aflandskrónueigendum sem geyma krónur sínar á innlánsreikningum. Sá hópur erlendra krónueigenda er talinn óþolinmóðari en eigendur ríkispappíra og þar að leiðandi tilbúinn til að sætta sig við hærra verð í evrum fyrir krónur sínar en síðarnefndi hópurinn. Lægri heildarupphæð tilboða í útboðinu nú en í júníútboðinu gæti einmitt bent til þess að "snjóhengjan" margumtalaða, þ.e. sú fjárhæð aflandskróna sem þrýstir hvað mest á að yfirgefa gjaldmiðilinn við fyrsta tækifæri, hafi minnkað í takti við niðurstöðu fyrsta útboðsins.“
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira