Brýnt að bankar hugi að annarri fjármögnun en innlánum 13. júlí 2011 13:30
Viðskiptabankarnir eru að stærstum hluta fjármagnaðir með innlánum. Það er brýnt verkefni allra bankanna að undirbúa breytingar á fjármögnun. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Bankasýslu ríkisins 2011 sem birt hefur verið á vefsíðu Bankasýslunnar. Í skýrslunni kemur einnig fram að rekstrarafkoma viðskiptabankanna batnaði umtalsvert á milli ára en að rekstrarkostnaður jókst verulega á árinu 2010 eða um 15%. Eiginfjárgrunnur allra bankanna er sterkur eða á bilinu 19 – 27% í lok árs 2010. Bankarnir eru þó allir með hátt hlutfall af lánum sem þarfnast endurskipulagningar og er óvissa um gæði eignasafnsins því enn töluverð. Í skýrslunni er varað við þeirri tilhneigingu að aðrar leikreglur eigi að gilda um fjármálafyrirtæki í ríkiseigu en önnur fjármálafyrirtæki. Það dregur úr samkeppnishæfni þeirra og kemur með neikvæðum hætti niður á verðmæti þeirra. Bankasýsla ríkisins tók við stofnfjárhlutum ríkissjóðs í fimm af tíu sparisjóðum landsins í desember 2010 og janúar 2011. Þeir eru Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Norðfjarðar, Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis. Ef litið er til síðustu tíu ára hefur arðsemi af reglulegum rekstri sparisjóðanna verið veik. Fjárhagslegri endurskipulagningu er nýlokið og því ekki ljóst hver arðsemi af rekstri endurskipulagðra fyrirtækja muni verða. Erfið rekstrarskilyrði fjármálafyrirtækja almennt og sérstakur vandi sparisjóðanna, sem standa fáir eftir með sameiginlegan rekstur, sem áður var borinn af umtalsvert stærra sparisjóðakerfi, gefa ekki tilefni til bjartsýni. Að mati Bankasýslunnar er brýnt að taka ákvarðanir um framtíð sparisjóðanna. Minni háttar breytingar kunna að vera ófullnægjandi til að tryggja sjálfbærni sparisjóðanna til lengri tíma. Framundan eru stór verkefni og ber þar hæst undirbúningur að hugsanlegri sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Bankasýslunni ber lögum samkvæmt að gera tillögu til fjármálaráðherra um hvort og hvenær slík sala skuli eiga sér stað. Að mörgu ber að huga í þessu sambandi enda mun sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum hafa víðtæk áhrif. Það er því ljóst að miklu skiptir að vel takist til við undirbúning og framkvæmd söluáætlunar, sem og annarra verkefna Bankasýslunnar. Af hálfu stofnunarinnar var því lýst yfir þegar á fyrsta starfsári að vegna núverandi og fyrirsjáanlegra verkefna væri nauðsynlegt að fjölga starfsmönnum m.a. til að stofnunin byggi yfir nauðsynlegum þekkingargrunni. Þá yrði stofnunin að geta leitað til utanaðkomandi sérfræðinga þegar þörf kræfi, en í málefnum Bankasýslunnar kann að vera nauðsynlegt að leita til erlendra sérfræðinga vegna tiltekinna verkefna. Uppbygging stofnunarinnar hefði þurft að eiga sér stað á árinu 2010 þar sem verkefni hennar eru aðkallandi, hagsmunir miklir og starfstími takmarkaður. Fjármögnun stofnunarinnar gaf hins vegar ekki svigrúm til þess.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira