Gengi krónunnar hefur veikst um 1,8% á árinu 18. janúar 2011 12:13
Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð það sem af er ári. Frá áramótum nemur lækkunin 1,8% ef miðað er við viðskiptavegna gengisvísitölu krónunnar. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að evran hafi farið á þessum tíma úr 153,8 kr. í 156,6 kr. og krónan því veikst um 1,8% gagnvart evru. Öllu minni hefur breytingin verið gagnvart dollaranum en hann kostaði 115,1 kr. um áramótin en kostar nú 116,8 sem er hækkun um 1,5% gagnvart krónu, en talsverð sveifla hefur verið á evru/dollar gengiskrossinum frá áramótum. Ekki er hægt að svara því með óyggjandi hætti hvað hefur valdið lækkun krónunnar undanfarið. Nokkrir þættir koma hins vegar til greina. Kaup Seðlabankans á gjaldeyri er einn þáttur en bankinn hefur með kaupum sínum undanfarið verið að styrkja þann hluta gjaldeyrisforðans sem ekki er fenginn að láni og í leiðinni tekið nokkuð af því takmarkaða framboði sem hefur verið af gjaldeyri. Á síðasta ári keypti bankinn gjaldeyri fyrir tæplega 30 milljarða kr. Af því voru 27,4 milljarðar kr. í desember og í tengslum við leiðréttingu á gjaldeyrisójöfnuði viðskiptabankanna. Hlutdeild bankans af veltunni á millibankamarkaðinum með gjaldeyri var 82% á fimm síðustu mánuðum síðastliðins árs eða frá því að bankinn hóf regluleg kaup á gjaldeyri í ágúst. Væntingar um að afnám hafta sé á næsta leiti kann að vera önnur skýring á þessari lækkun í gengi krónunnar sem verið hefur á árinu, en væntanleg áætlun Seðlabankans, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og stjórnvalda um afnám hafta er boðuð fyrir lok febrúar. Tímasett áætlun á síðan að liggja fyrir áður en efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda rennur sitt skeið í ágúst næstkomandi. Reikna hefði mátt með því að í því takmarkaða gjaldeyrisflæði sem er heimilt undir núverandi gjaldeyrishöftum yrði nokkur árstíðarbundin sveifla í gengi krónunnar. Þannig er innflæði gjaldeyris vegna ferðamannaþjónustu langmest á þriðja ársfjórðungi en hins vegar afar lítið á fyrsta ársfjórðungi. Var þjónustujöfnuðurinn þannig jákvæður á þriðja ársfjórðungi í fyrra um 35,3 milljarða kr. en neikvæður á fyrsta ársfjórðungi um 0,3 milljarðar kr. Má vera að þessi veiking krónunnar nú tengist þessu árstíðarbundna flæði að einhverju marki.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira