Hefðu getað afskrifað meiri skuldir hjá fólki 9. mars 2011 05:00 Núna standa yfir nefndadagar á Alþingi en þá er stíft fundað í hinum ýmsu nefndum þingsins. Vera má að stjórnarformenn Arion banka og Íslandsbanka verði kallaðir fyrir viðskiptanefnd til að ræða laun bankastjóra.Fréttablaðið/GVA
Lilja Mósesdóttir Rætt verður á fundi viðskiptanefndar Alþingis í dag hvort tilefni sé til að kalla fyrir nefndina stjórnarformenn Íslandsbanka og Arion banka. Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður nefndarinnar, segir vonir hafa staðið til að hægt yrði að ræða þau mál á fundi nefndarinnar í gær, en þá komu á fund hennar fulltrúar bankans til að fara yfir ársreikninga bankanna. „Við fengum mjög greinargóðar skýringar varðandi hagnað bankanna og hvernig hann er til kominn," segir Lilja og vísar til þess að 14,3 milljarðar króna af hagnaði Arion banka séu vegna endurmats á eignum og 13 milljarðar hjá Íslandsbanka. „Þetta segir okkur að bankarnir eru að afskrifa minna en þeir bjuggust við." Hagnaðinn segir hún fara inn í bankann sem aukið eigið fé og endi síðan í vasa kröfuhafa bankanna. „Það er ekki það sem við myndum vilja sjá, sérstaklega í ljósi þess að hér eiga mörg heimili í erfiðleikum með að láta enda ná saman og mörg fyrirtæki í hægagangi vegna skuldsetningar. Við hefðum viljað sjá þetta fara til viðskiptavina bankanna," segir hún og telur að ræða þurfi við bankana hvort rétt hefði verið að fara neðar með afskriftaprósentu en gert var í svokallaðri 110 prósenta leið í skuldaafskriftum. Lilja áréttar þó að hún hafi ekkert á móti hagnaði í bankarekstri. „En hann á að koma sem rekstrarafgangur, en í raun er rekstrarkostnaður að aukast hjá bönkunum, meðal annars vegna þess að laun eru að hækka og starfsfólki að fjölga. Þetta er þvert á það sem ætlunin var að ná fram, sem er minna bankakerfi." Um leið segir Lilja ljóst að hér sé við lýði kapítalískt hagkerfi og því ekki hægt að skipta sér af rekstri bankanna með beinum hætti. Meðal annars sé það ástæðan fyrir því að hún hafi stungið upp á sérstakri skattlagningu á laun yfir einni milljón króna. Hugmyndin hafi fengið góðar undirtektir í þingliðinu þótt sumum hafi þótt ein milljón fulllág tala, ekki hafi verið ætlunin að leggja sérstakan skatt á stéttir á borð við sjómenn og lækna. „Hugmyndin er að ná þeim sem eru með tvær, þrjár og fjórar milljónir í laun." Lilja telur því raunhæft að hefja sérstaka skattlagningu á laun á bilinu 1,2 til 1,5 milljónir króna á mánuði og láta skattprósentuna ná allt að 70 prósentum. „En þetta yrði svona symbolískur skattur. Ríkið fær ekki rosalegar tekjur af þessu," segir hún en telur um leið eðlilegt að þeir sem hæstar hafi tekjurnar beri mestan kostnað af endurreisn þjóðfélagsins. Það hafi til dæmis verið gert í Bandaríkjunum eftir seinna stríð. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira