Landsvirkjun ræður þrjá starfsmenn í markaðsmál 9. mars 2011 13:40
Landsvirkjun hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn í markaðs- og viðskiptaþróun og eru ráðningarnar liður í að efla starfsemi fyrirtækisins á sviði markaðsmála. Markmið Landsvirkjunar er að fjölga viðskiptavinum með því að sækja inn á nýja markaði og samhliða því að auka þjónustu við núverandi viðskiptavini. Í tilkynningu segir að tveir viðskiptastjórar og einn sérfræðingur hafa verið ráðnir til þess að styrkja markaðsstarf og þjónustu fyrirtækisins frekar. Stella Marta Jónsdóttir hefur verið ráðin sem viðskiptastjóri og mun hún bera ábyrgð á raforkusölu Landsvirkjunar á heildsölumarkaði auk þess að halda utan um hluta af núverandi viðskiptavinum. Stella lauk Ph.D gráðu í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet 1998 og M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskólanum í Álaborg 1991. Frá árinu 2006 hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Kaffitárs og áður starfaði hún hjá Maritech og sem verkefnisstjóri hjá danska ráðgjafafyrirtækinu NIRAS. Ríkarður Ríkarðsson hefur verið ráðinn sem viðskiptastjóri og mun hann bera ábyrgð á þróun viðskipta við gagnaver auk þess að halda utan um viðskipti við hluta af núverandi viðskiptavinum. Ríkarður lauk M.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford 2002 með áherslu á þráðlaus samskipti. Ríkarður hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn frá árinu 2009. Á árunum 2006-2009 starfaði Ríkarður hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum og 2002-2006 vann hann hjá Xilinx, bandarískum framleiðanda á örgjörvum, fyrst með aðsetur í Kaliforníu við vöruþróun en síðar með aðsetur í London við þróun á viðskiptum og sölu til evrópskra tæknifyrirtækja. Eyrún Guðjónsdóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur í viðskiptaþróun og mun hún bera ábyrgð á greiningu og uppbyggingu viðskipta sem tengjast kolefnismörkuðum og grænum skírteinum ásamt almennri ráðgjöf. Eyrún lauk M.Sc. gráðu í alþjóðafjármálum 2008 og B.Sc. prófi í viðskiptalögfræði 2005 frá Háskólanum á Bifröst. Eyrún stofnaði ráðgjafarfyrirtækið KOLKU í upphafi árs 2009 en starfsemi þess byggist á greiningu, ráðgjöf og viðskiptum með kolefnisheimildir. Áður starfaði Eyrún í sex ár hjá Íslandsbanka, síðast sem lánastjóri fyrirtækja. Viðskiptastjórar á sviðinu eru að loknum þessum ráðningum þrír, en auk Stellu og Ríkarðs er Edvard G. Guðnason viðskiptastjóri. Viðskiptastjórar bera ábyrgð á rekstri samninga og samskiptum við núverandi og væntanlega viðskiptavini. Auk þess sinna þrír starfsmenn greiningu og viðskiptaþróun. Viðskiptaþróun styður við bak viðskiptastjóra með greiningu á mörkuðum, undirbúningi samningsgerðar og þróun á nýjum vörum. Einar Kristjánsson er forstöðumaður viðskiptaþróunar, og Þórólfur Nielsen verkfræðingur er sérfræðingur. Framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar er Magnús Bjarnason.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira