Allt að 85% verðmunur á lausasölulyfjum 9. mars 2011 15:38
Garðsapótek við Sogaveg var oftast með lægsta verðið á lausasölulyfjum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í apótekum mánudaginn 7. mars. Laugarnesapótek við Kirkjuteig var oftast með hæsta verðið í könnuninni. Verðmunur á milli einstakra lyfja var allt að 85% en í 23 tilvikum af 34 sem skoðuð voru í könnuninni var 33-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Í tilkynningu frá ASÍ segir að kannað var verð á 34 algengum lausasölulyfjum, sem eru seld án lyfseðils. Farið var í apótek víðsvegar á landinu en Ólafsvíkurapótek neitaði þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna í Garðsapóteki í 16 tilvikum af 34. Hæsta verðið var oftast í Laugarnesapóteki í 22 tilvikum af 34. Mesti verðmunurinn í könnuninni var á sótthreinsandi sápu Hibiscrub 500 ml. sem var dýrust á 3.690 kr. í Lyf og heilsu og ódýrust á 1.998 kr. í Apóteki Hafnarfjarðar og Apóteki Vesturlands sem er 1.692 kr. verðmunur eða 85%. Einnig var mikill verðmunur á Postafen lyfi gegn ferðaveiki, (10 stk. í pakka), var það dýrast á 690 kr. í Laugarnesapóteki og ódýrast á 390 kr. í Garðsapóteki, sem er 300 kr. verðmunur eða 77%. Hægðarlyfið Laxoberal (30 ml.) var dýrast á 2.636 kr. í Apóteki Hafnarfjarðar, Urðarapóteki og Apóteki Vesturlands, en ódýrast á 1.590 kr. í Garðsapóteki sem er 66% verðmunur. Af öðrum algengum lausasölulyfjum má nefna að nikótínlyfið Nicorette fruitmint í 210 stk. pakkningu var dýrast á 5.442 kr. í Lyf og heilsu og ódýrast á 3.995 kr. í Árbæjarapóteki sem er 1.447 kr. verðmunur sem er 36%. Hjartamagnyl 100 stk. í glasi var dýrast á 950 kr. í Laugarnesapóteki og ódýrast á 689 kr. í Akureyrarapóteki 38% verðmunur. Settur var saman pakki af algengum lausasölulyfjum sem til eru í skápum landsmanna. Þessi pakki inniheldur verkjalyfin Ibúfen, Pinex Junior stíla og Paratabs, ofnæmislyfið Histasin, nefúða frá Otrivin og áblásturskremið Vectavir. Þessi pakki var ódýrastur á 3.940 kr. í Garðsapóteki og dýrastur á 5.551 kr. í Laugarnesapóteki, sem er 1.611 kr. verðmunur eða 41%.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira