Ábyrgðarlaust að auglýsa neyslulán Viktor A. Guðlaugsson skrifar 9. desember 2011 06:00 Ég veit ekki hvort það eru stundargrið að neysluauglýsingum banka og fjármálafyrirtækja virðist hafa linnt síðust daga. Mér finnst það hinsvegar grafalvarlegt mál ef þær beinast að fólki sem hefur lítið á milli handanna og þarf að fjármagna sinn heimilisrekstur með lánsfé. Að auglýsa neyslulán til kaupa á allt að 10 ára gömlum bílum eða öðrum verðlausum varningi er að mínu mati bæði ábyrgðarlaust og siðferðislega rangt. Auðvitað veltir maður fyrir sér þeirri þversögn stjórnvalda hvernig saman fari að hvetja til einkaneyslu sem auka á hagvöxt á sama tíma og fólk er skattpínt, vextir sparifjáreigenda neikvæðir og útlánavextir háir. Vissulega kann það að virka hvetjandi fyrir sparifjáreigendur sem fá neikvæða vexti að fjárfesta í einhverju öðru, t.d. fasteignum ef innistæður leyfa, en slíkar fjárfestingar hafa ýmsar hliðarverkanir, t.d. skattalegar. Þær eru vissulega áhættusamar á þessum óvissutímum og varla er hægt að reikna með að þegnar eins og eldri borgarar taki slíka áhættu og þá fyrirhöfn sem því fylgir. Það væri svo að bera í bakkafullan lækinn að ræða mál okkar sem í raun borgum brúsann af hruninu. Þar á ég við fólk sem ekki hefur þurft að leita sérstakra úrlausna á sínum málum og átti umtalsverðan hlut í sínum fasteignum en hefur nú verið rúið eignum vegna lækkunar fasteignaverðs og ákvæða verðtrygginga sem eiga sér enga hliðstæðu í hinum siðmenntaða heimi. Því þarf varla að koma á óvart að traust almennings á bankastofnunum og þjóðþinginu sé nánast ekkert. Ekki bætir úr skák að vilji menn fylgjast með þjóðmálaumræðunni verða menn að þola að sitja undir gaspri, stóryrðum og þrefi sem ekki yrði liðið á nokkrum öðrum vettvangi. Ekki veit ég hvað til bragðs skal taka. Við höfum frá árinu 1262 aðeins haft sjálfstæði í 67 ár. Við áttum nokkra þokkalega áratugi í veldi Noregskonunga en öldum saman verri undir danskri stjórn. Nú kann okkur að bjóðast að lúta stjórn Evrópusambandsins, sem við að vissu marki höfum þegar undirgengist. Ef það getur hjálpað okkur til að losna undan vitsmuna- og marklausri umræðu væri það líklega til vinnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Ég veit ekki hvort það eru stundargrið að neysluauglýsingum banka og fjármálafyrirtækja virðist hafa linnt síðust daga. Mér finnst það hinsvegar grafalvarlegt mál ef þær beinast að fólki sem hefur lítið á milli handanna og þarf að fjármagna sinn heimilisrekstur með lánsfé. Að auglýsa neyslulán til kaupa á allt að 10 ára gömlum bílum eða öðrum verðlausum varningi er að mínu mati bæði ábyrgðarlaust og siðferðislega rangt. Auðvitað veltir maður fyrir sér þeirri þversögn stjórnvalda hvernig saman fari að hvetja til einkaneyslu sem auka á hagvöxt á sama tíma og fólk er skattpínt, vextir sparifjáreigenda neikvæðir og útlánavextir háir. Vissulega kann það að virka hvetjandi fyrir sparifjáreigendur sem fá neikvæða vexti að fjárfesta í einhverju öðru, t.d. fasteignum ef innistæður leyfa, en slíkar fjárfestingar hafa ýmsar hliðarverkanir, t.d. skattalegar. Þær eru vissulega áhættusamar á þessum óvissutímum og varla er hægt að reikna með að þegnar eins og eldri borgarar taki slíka áhættu og þá fyrirhöfn sem því fylgir. Það væri svo að bera í bakkafullan lækinn að ræða mál okkar sem í raun borgum brúsann af hruninu. Þar á ég við fólk sem ekki hefur þurft að leita sérstakra úrlausna á sínum málum og átti umtalsverðan hlut í sínum fasteignum en hefur nú verið rúið eignum vegna lækkunar fasteignaverðs og ákvæða verðtrygginga sem eiga sér enga hliðstæðu í hinum siðmenntaða heimi. Því þarf varla að koma á óvart að traust almennings á bankastofnunum og þjóðþinginu sé nánast ekkert. Ekki bætir úr skák að vilji menn fylgjast með þjóðmálaumræðunni verða menn að þola að sitja undir gaspri, stóryrðum og þrefi sem ekki yrði liðið á nokkrum öðrum vettvangi. Ekki veit ég hvað til bragðs skal taka. Við höfum frá árinu 1262 aðeins haft sjálfstæði í 67 ár. Við áttum nokkra þokkalega áratugi í veldi Noregskonunga en öldum saman verri undir danskri stjórn. Nú kann okkur að bjóðast að lúta stjórn Evrópusambandsins, sem við að vissu marki höfum þegar undirgengist. Ef það getur hjálpað okkur til að losna undan vitsmuna- og marklausri umræðu væri það líklega til vinnandi.
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun