Hafnarfjarðarbær semur um erlend lán 9. desember 2011 00:01 Guðmundur Rúnar árnason
StjórnsýslaHafnarfjarðarbær hefur samið við þýsku fjármálastofnanirnar DEPFA ACS og FMS Wertmanagement um framlengingu á erlendum lánum sveitarfélagsins. Samkomulagið nær yfir 13 milljarða af skuldum Hafnarfjarðar. Þar af voru 4,3 milljarðar á gjalddaga í apríl síðastliðnum og 5,5 milljarðar á gjalddaga í janúar á næsta ári. Skuldir bæjarins voru um síðustu áramót rúmir 30 milljarðar króna, sem jafngildir 243 prósentum af tekjum bæjarins í fyrra. „Þetta samkomulag hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir bæinn því þetta eyðir þeirri óvissu sem við höfum búið við. Þetta setur afborgunarferlið í þannig ramma að það rúmast vel innan þeirra fjárhagsáætlana sem við höfum gert til næstu ára,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og bætir því við að fínt jafnvægi sé að nást í rekstur bæjarins eftir erfið ár. Samkomulagið kveður á um lán til fjögurra ára með afborgunum og greiðslu vaxta á þriggja mánaða fresti. Í tilkynningu frá bænum segir að sveitarfélagið geti vel staðið undir greiðslum af láninu. Þá leggur bærinn meðal annars óseldar en skipulagðar lóðir í bænum og skuldabréf við Alterra Power (áður Magma Energy) að veði fyrir láninu. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 var lögð fram í bæjarstjórn á miðvikudag. Stefnt er að því að rekstarniðurstaða A- og B-hluta verði samanlagt jákvæð um 156,7 milljónir. Á árinu er ráðgert að greiða niður lán að fjárhæð 1,4 milljarðar króna en áætlað veltufé samantekið frá rekstri A- og B-hluta er áætlað 1,9 milljarðar. Þá er í fjárhagsáætluninni gert ráð fyrir hóflegum hækkunum á gjaldskrá sveitarfélagsins en samkvæmt tilkynningu munu þær í flestum tilfellum aðeins fylgja verðlagsbreytingum og hækkunum á verði aðfanga og launa.- mþl
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira