Allt í hnút í makríldeilunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. desember 2011 17:39 Tómas H. Heiðar er aðalsamningamaður Íslands í deilunni.
Ekki náðist samkomulag um skiptingu aflaheimilda í makrílveiðum á Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári á fundi strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Noregs og Færeyja, sem lauk í dag. Fundurinn var haldinn í Clonakilty á Írlandi og hófst á þriðjudaginn. Á fundinum lögðu ESB og Noregur fram tillögu um skiptingu aflaheimilda milli strandríkjanna fjögurra. Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands, segir að tillagan hafi verið algjörlega óraunhæf. Hún hafi falið í sér skref aftur á bak frá undanförnum fundum og valdið slenskum stjórnvöldum miklum vonbrigðum. „Í ljósi þess að ekki virtist mögulegt að ná samkomulagi um framtíðarstjórnun makrílveiðanna lagði Ísland til bráðabirgðalausn í því skyni að tryggja verndun stofnsins. Fólst hún í því að aðilar myndu virða ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) um leyfilegan heildarafla ársins 2012, 639.000 tonn, og halda núverandi hlutdeild sinni í veiðunum. Hinir aðilarnir voru ekki reiðubúnir að fallast á tillöguna,“ segir Tómas Heiðar í tilkynningu til fjölmiðla. Í ljósi framangreinds liggur fyrir að hlutdeild Íslands í makrílveiðunum á næsta ári verður óbreytt, um 16%, en aflaheimild Íslands mun taka mið af örlítilli lækkun á ráðgjöf ICES milli ára. ICES lagði til 646.000 tonna heildarafla á þessu ári en leggur til 639.000 tonna heildarafla á næsta ári. Kvóti Íslands á þessu ári var 146.818 tonn. Íslensk stjórnvöld ætla áfram að leggja ríka áherslu á að ná samkomulagi um stjórnun makrílveiðanna til að tryggja sjálfbærar veiðar og koma í veg fyrir frekari ofveiði úr stofninum. Ísland er því reiðubúið að halda áfram að leggja sitt af mörkum til að ná samkomulagi í samstarfi við hin strandríkin. Náist samkomulag aðila á næstunni verður framangreind ákvörðun tekin til endurskoðunar.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira