Viðskipti innlent

Epli.is sektað fyrir loforð um „enga vírusa“

Epli.is er umboðsaðili Apple hér á landi.
Epli.is er umboðsaðili Apple hér á landi. Mynd/Stefán
Neytendastofa hefur sektað Epli.is um eina og hálfa milljón króna sökum þess að fyrirtækið notaði fullyrðinguna „engir vírusar" í auglýsingum sínum, en gat ekki fært sönnur á hana. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Sektin er lögð á rekstraraðila Epli.is vegna þess að fyrirtækið fór ekki eftir banni Neytendastofunnar við að nota fullyrðinguna í markaðsherferðum.

Í desember á síðasta ári gerði Neytendastofa fyrst athugasemdir við auglýsingarnar. Í október á þessu ári bárust hins vegar ábendingar um að auglýsingarnar væru aftur farnar að birtast.

Í kjölfarið komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að um ítrekuð brot væri að ræða og fyrirtækið sýndi einbeittan vilja til að blekkja neytendur. Því þótti hæfilegt að sekta fyrirtækið um eina og hálfa milljón króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×