Aukning farþega og flugvéla eykur tekjur Isavia 11. október 2011 10:13
Aukin farþegaumferð um Keflavíkurflugvöll og flugumferð yfir Norður Atlantshafið hefur komið Isavia verulega til góða í ár. Þessi aukna umferð farþega og flugvéla skilaði hátt í 800 milljónum króna í auknar tekjur hjá Isavia á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Í tilkynningu um rekstur Isavia kemur hinsvegar fram að þrátt fyrir þessa góðu tekjuaukningu var heildarafkoma Isavia neikvæð um tæpan hálfan milljarð króna fyrstu sex mánuði ársins en rekja má þennan taprekstur til gengistaps sem nam rúmum 800 milljónum króna á tímabilinu. Þótt rekstur félagsins sé góður er niðurstaðan neikvæð sökum mikillar skuldsetningar og nægja tekjur ekki til nauðsynlegrar uppbyggingar og framþróunar. Ljóst er að enn um sinn muni ríkissjóður verða að fjármagna sérstaklega öll stærri verkefni við endurbætur og uppbyggingu flugvallarmannvirkja og flugleiðsögubúnaðar svo fullnægjandi framþróun og öryggi í flugsamgöngum verði tryggð með bestum hætti. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði jókst um 246 milljónir króna milli ára en þess ber að geta að afkoma félagsins er jafnan betri á síðari hluta ársins. Vel heppnað markaðsstarf flugfélaganna og átakið „Inspired by Iceland" hefur skilað umtalsverðri farþegaaukningu á Keflavíkurflugvelli það sem af er seinni helmingi þessa árs. Rúmt ár er nú liðið frá sameiningu opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar í Isavia ohf. Dótturfélag Flugstoða, Flugfjarskipti, sameinaðist félaginu 1. júlí 2010. Helsta markmiðið með sameiningu félaganna var að skapa sterkari einingu sem yrði betur í stakk búin til að bregðast við tækifærum og eða ógnunum sem framtíðin bæri í skauti sér. Rekstur félagsins var endurskipulagður og er það mat stjórnar félagsins að vel hafi tekist til. Beinn fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni er metin á rúmlega 200 milljónir en auk þess sýna rekstrartölur fyrstu mánuði ársins að aðhaldsaðgerðir og stefnumörkun félagsins í ársbyrjun hefur skilað góðum árangri, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira