Erlendar eignir lífeyrissjóðanna rýrnuðu um 35 milljarða 11. október 2011 12:29
Erlendar eignir lífeyrissjóða skruppu saman í ágúst um tæpa 35 milljarða kr., eða sem nemur 7%, og hefur hlutfall þeirra af heildareignum lífeyrissjóða ekki verið lægra í ríflega sex ár. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á heildina litið minnkaði hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyris um 24 milljarða kr. í ágústmánuði, en hún nam 2.019 milljörðum kr. í ágústlok. Svo mikil hefur lækkun á eign sjóðanna milli mánaða ekki verið síðan í ársbyrjun 2009 eða síðan sjóðirnir voru enn að súpa seyðið af bankahruninu. Ágústmánuður var afleitur á erlendum hlutabréfamörkuðum, og er það meginskýringin á rýrnun erlendra eigna lífeyrisjóðanna, enda eru þær að stærstum hluta bundnar í erlendum hlutabréfasjóðum. Má nefna að S&P500-vísitalan lækkaði um ríflega 6% í mánuðinum og Euro Stoxx-vísitalan lækkaði um nærri 13% á sama tíma. Auk þess styrktist krónan um 1,5% í ágústmánuði, sem vitaskuld rýrir erlendu eignastöðuna í krónum talið. Erlendar eignir lífeyrissjóða námu alls 454 milljörðum kr. í ágústlok, sem samsvarar 22,5% af hreinni eign sjóðanna. Þetta hlutfall hefur lækkað jafnt og þétt frá fyrri hluta ársins 2010, og hefur það ekki verið lægra en nú frá því á vordögum árið 2005. Framangreind þróun á erlendum mörkuðum hélt svo áfram í september, auk þess sem krónan styrktist lítillega til viðbótar, svo gera má ráð fyrir að erlendar eignir sjóðanna hafi rýrnað enn frekar í síðasta mánuði. „Þessi þróun hefur væntanlega veruleg áhrif á vilja sjóðanna til þess að selja erlendar eignir sínar í skiptum fyrir ríkisskuldabréf í krónum í útboðum Seðlabankans, enda er ekki á vísan að róa með hvenær gjaldeyrishöftunum verður aflétt að því marki að þeir geti á ný farið að auka erlendar eignir sínar,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira