Héraðsdómur segir álit EFTA dómstólsins óþarft Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. mars 2011 11:39 Fjármögnunarleigusamningar voru notaðir til að fjármagna kaup á atvinnutækjum.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar um að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA dómstólsins á banni í íslenskum vaxtalögum við því að binda skuldbindingar í íslenskri krónu við gengi erlendra gjaldmiðla. Forsaga málsins er sú að fyrirtækið Smákranar stefndi Lýsingu vegna fjármögnunarleigusamnings sem gerður var til að fjármagna atvinnutæki. Samningurinn var bundin við gengi erlendra gjaldmiðla. Þegar Hæstiréttur komst síðan að þeirri niðurstöðu í sumar að kaupleigusamningar sem bundnir eru við erlenda mynt væru óheimilir samkvæmt vaxtalögum stefndu Smákranar Lýsingu á þeirri forsendu að fjármögnunarleigusamningurinn hefði einnig verið ólöglegur. Lýsing telur að ákvæði vaxtalaga, samkvæmt niðurstöðum Hæstaréttar frá því í sumar, stangist á við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum sem tók gildi hér á landi árið 1994. Ekki hefði verið tekið á þessu atriði í dómi Hæstaréttar. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að niðurstaða EFTA dómstólsins hefði enga þýðingu fyrir úrlausn málsins. Um innlendan réttarágreining væri að ræða. Ekkert í málinu gæfi vísbendingu um að lánveitingin tengdist tveimur eða fleiri aðildarríkjum eða að hún væri gerð þvert á landamæri. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá ERGO lögmönnum, sem flutti málið fyrir Smákrana segir að niðurstaða Héraðsdóms í morgun komi sér ekki á óvart. „Ég hafði sagt strax í upphafi að þessi beiðni var byggð á mjög ótraustum grunni. Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart," segir Einar Hugi.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Sjá meira