Matvörufélag Ólafs græðir milljarða 7. nóvember 2011 00:01
Hollenska matvælafyrirtækið Alfesca, sem Ólafur Ólafsson á tæplega 40 prósenta hlut í, hagnaðist um 35 milljónir evra á síðasta ári, sem jafngildir rúmlega 5,5 milljörðum íslenskra króna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Ólafur á hlutinn í gegnum félagið Kjalar Invest, á móti franska fyrirtækinu Lur Berri. Hlutur Ólafs var áður inni í Eglu, dótturfélagi Kjalars, en hann flutti hlutinn í Kjalar Invest áður en Egla gekk í gegnum nauðasamninga við kröfuhafa. Tæplega hálfur milljarður króna var greiddur í arð til hluthafa Alfesca í fyrra, en eignir félagsins umfram skuldir nema um 59 milljörðum íslenskra króna. Ólafur samdi nýlega við Arion banka um skuldauppgjör Kjalars, sem hélt utan um þriðjungshlut hans í HB Granda. Arion banki tók hlutinn, auk lausafjár, samtals að andvirði ríflega þrettán milljarða, upp í rúmlega 70 milljarða skuld Kjalars við bankann. Skuldin er nú að engu orðin. Ólafur, sem var í síðustu viku yfirheyrður af sérstökum saksóknara vegna tengsla sinna við hið svokallaða Al-Thani-mál hjá Kaupþingi, á enn ráðandi hlut í flutningarisanum Samskipum ásamt stjórnendum félagsins.- sh
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira