Endurfjármagna Hörpuna 7. nóvember 2011 08:00 Eldborgarsalurinn í Hörpu. mynd/ valli
Til stendur að ráðast í skuldabréfaútgáfu upp á 18 milljarða króna til að endurfjármagna sambankalán sem Austurhöfn-TR, eigandi tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, tók í janúar í fyrra. Austurhöfn er í 54% eigu íslenska ríkisins og 46% eigu Reykjavíkurborgar. Skuldabréfaútboðið á að fara fram á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 og verður innlent. Þetta staðfestir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, dótturfélags Austurhafnar, sem heldur utan um eignarhald á Hörpunni. Í skýrslu stjórnar Portusar í ársreikningi félagsins fyrir árið 2010 er vísað í skýringu með ársreikningnum sem fjallar um fjárhagslega stöðu félagsins. Pétur segir hana snúast um að ekki sé búið að ganga frá endurfjármögnun á sambankaláninu sem tekið var í janúar 2010. Stóru bankarnir þrír; Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki, veittu lánið. Áætlaður kostnaður vegna þess stendur í 17,7 milljörðum króna. Þá er ekki tekið tillit til um 10 milljarða króna skuldbindingar sem fyrri eigendur hússins höfðu ráðist í og íslenska ríkið og Reykjavíkurborg keyptu á 1,6 milljarða króna þegar þau tóku að sér að klára byggingu Hörpu í mars 2009. Heildarkostnaður við framkvæmdina er því áætlaður um 27,7 milljarðar króna. Í svari Svandísar Svavarsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, við fyrirspurn á Alþingi 17. október síðastliðinn um kostnað við Hörpu kom fram, að á núverandi verðlagi nemi framlög ríkis og borgar vegna sambankalánsins 960 milljónum króna á ári. Þau eru til 35 ára og skiptast á milli eigendanna í samræmi við eignarhald þeirra. Pétur segir það hafa skapað ákveðið óöryggi að ekki sé búið að ganga frá endurfjármögnun á sambankaláninu. „Það er á breytilegum vöxtum yfir 35 ára tímabil. Við það skapast ákveðið óöryggi. Við ákváðum að bíða með endurfjármögnun vegna þess að við trúum því að kjör eigi eftir að batna fyrir skuldabréfaútgáfu. En við reiknum með að klára hana á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og að við förum þá í skuldabréfaútgáfu innanlands. Hún verður upp á 18 milljarða króna til að endurfjármagna sambankalánið." - þsj
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira