Viðskipti innlent

Icelandair hækkaði í kjölfar tilkynningar um sölu

Icelandair hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin misseri. Félagið skilaði til að mynda 5,4 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi þess ár.
Icelandair hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin misseri. Félagið skilaði til að mynda 5,4 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi þess ár.
Icelandair hækkaði um rúmlega 1,1 % í dag og stendur gengi bréfa féalgsins nú í 5,48. Eins og áður hefur komið fram tilkynnti Framtakssjóður Íslands um það í morgun að hann hygðist selja 10% hlut í félaginu á genginu 5,42. Íslandsbanki hefur umsjón með söluferlinu.

Gengi bréfa í Össuri hækkað mest, um 1,55%, og stendur gengið nú í 196. Gengi bréfa í Marel lækkaði um 1,22% og er gengið nú 121.

Lækkanir hafa einkennt alþjóðlega hlutabréfamarkaði í dag. Stoc Europe 600, samræmd vísitala hlutabréfamarkaða í Evrópu, lækkaði um 0,6% í dag og er óvissu um stöðu mála í Evrópu einkum kennt um.

Í Bandaríkjunum hafa markaðir einnig lækkað en markaðirnir lokast ekki fyrr en í kvöld. Nasdaq vísitalan hefur lækkað um 0,8% það sem af er degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×