Jól

Fagrar piparkökur

Piparkökurnar sóma sér vel sem jólaskraut til að hengja upp í glugga eða á jólatré. Þá er bara að muna eftir að stinga gati í kökurnar áður en þeim er stungið í ofninn.
Piparkökurnar sóma sér vel sem jólaskraut til að hengja upp í glugga eða á jólatré. Þá er bara að muna eftir að stinga gati í kökurnar áður en þeim er stungið í ofninn.

Stefanía Guðmundsdóttir bakar á hverju ári piparkökur sem eru bæði bragðgóðar og einkar fagrar. Hún deildi leyndarmálinu með lesendum jólablaðs Fréttablaðsins.

Stefanía Guðmundsdóttur er mikið jólabarn og finnst tilheyra að baka til jólanna. „Ég baka fimm til sex sortir," segir Stefanía sem sér þó fram á heldur meiri bakstur í desember í ár en vanalega því að frumburðurinn Sigrún Helga verður eins árs á Þorláksmessu.

Uppskriftin sem Stefanía deilir með lesendum er að piparkökum með brjóstsykri í sem líta fallega út, nánast eins og í þeim miðjum sé steint gler. Ekki svíkur bragðið, það er dásamlegt. Stefanía segir einfalt mál að baka kökurnar, lykillinn sé að baka piparkökurnar aðeins áður en brjóstsykurinn er settur í gatið, annars myndist í þeim loftbólur.

En hvernig skyldi hugmyndin að kökunum góðu hafa komið til? „Vinkona mín var að tala um að strákurinn hennar hefði gert svona kökur í leikskólanum, þannig að ég tók mig til og prófaði og það gekk vel."

Þó að jólin séu í upp­áhaldi hjá Stefaníu er hún ekki á því að hafa undirbúninginn allt of langan, hún setur upp seríur í glugga í desember en skreytir jólatréð á Þorláksmessu, við undirleik jólakveðja Ríkisútvarpsins.

„Almennt má segja að mér finnist smákökur, malt, appelsín og laufabrauð algjörlega nauðsynlegt í desember, að hitta fólk, baka og taka það rólega. Ég er hins vegar ekki mjög hlynnt jólastressi, vil hafa huggulegheit og kósí jólastemningu."

Stefanía gefur, auk venjulegrar uppskriftar, uppskrift að heilsusamlegu tilbrigði við smákökurnar.





Piparkökur með brjóstsykri
x Myndatexti.



Uppskriftin gefur um 100-120 piparkökur

500 g hveiti

280 g sykur

2 tsk. natron

3 tsk. kanill

1 1/2 tsk. negull

1 1/2 tsk. engifer

1/2 tsk. pipar

180 g smjör

1 dl síróp

1 dl sterkt kaffi (nescafé virkar vel)

Kóngabrjóstsykur

Ávaxtabrjóstsykur

Smjör mulið út í þurrefni og sírópi og kaffi bætt við. Hnoðað vel og deigið geymt í ísskáp yfir nótt, eða að minnsta kosti í nokkra klukkutíma. Deigið breitt fremur þunnt út, skornar út viðeigandi piparkökur og skorið úr miðjunni á þeim sem á að setja mola í.

Bakað við um 170 gráður og á blæstri (annars 190 gráður ef ekki blástur). Best hefur reynst að baka fyrst í um 3-4 mínútur, setja molann í miðjuna á gatinu sem skorið var út og baka áfram í um 3-4 mínútur í viðbót. Ef molinn er settur strax og bakaður með allan tímann koma loftbólur í „glerið" og það verður ekki eins fallegt.





"Heilsupiparkökutilbrigði“
Þær eru flottar og bragðgóðar piparkökurnar hennar Stefaníu sem hér er nýbúin að að taka einn skammt úr ofninum. Fréttablaðið /GVA



250 g fínmalað spelt

140 g fínmalaður hrásykur

1 tsk. natron

1 1/2 tsk. kanill

3/4 tsk. negull

3/4 tsk. engifer

1/4 tsk. pipar

90 g smjör

tæplega 1/2 dl agavesíróp

1/2 dl sterkt kaffi

Aðferðin er sú sama og hér á undan, það getur verið heldur snúnara að fletja þetta deig út. Eins og sést er þetta bara hálf uppskrift miðað við hina og hæfir sennilega betur ef ekki á að baka helling af piparkökum.








×