Ray Allen skráði nafn sitt í sögubækurnar í NBA deildinni Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 11. febrúar 2011 09:00 Ray Allen skorar hér þriggja stiga körfu gegn Lakers og þessi var númer 2.561, sem er met. AP
Ray Allen, leikmaður Boston Celtics, skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í NBA deildinni í gær en hann hefur nú skorað flestar þriggja stiga körfur í deildinni frá upphafi - alls 2.561. Metið var í eigu Reggie Miller sem lék í 18 tímabil með Indiana Pacers en Miller var viðstaddur þegar Allen bætti metið - í hlutverki íþróttafréttamanns. Allen, sem er 38 ára gamall, skoraði tvær þriggja stiga körfur í fyrsta leikhluta gegn LA Lakers í gærkvöld og sú fyrri jafnaði metið og hann bætti síðan metið þegar 1.48 mín. var eftir af fyrsta leikhluta. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út og Allen fagnaði áfanganum með fjölskyldu sinni um stundarsakir og Miller óskaði honum til hamingju með metið. Boston tapaði reyndar leiknum 92-86 en Allen sagði í leikslok að hann myndi aldrei gleyma þessum leik. Allen er í 25. sæti yfir stigahæstu leikmenn allra tíma í NBA deildinni með 21.875 stig á 15 ára ferli. Hann hefur leikið með Milwaukee, Seattle og Boston. Þriggja stiga línan kom í NBA deildina árið 1979 og Allen hefur skorað 2,4 slíkar körfur að meðaltali frá því hann kom í deildina fyrir 15 árum. Allen var fljótari að ná 2.560 þriggja stiga körfum en Miller. Allen þurfti 6,430 skot til þess að ná þessu meti og skotnýtingin er frábær, 39,8%. Miller þurfti 6.486 skot til þess að ná 2.560 þriggja stiga körfum og hann var einnig með góða nýtingu, 39,5 %. „Ég var eins og lítið barn og gat ekki sofið fyrir leikinn. Það er alltaf spenna í loftinu þegar þessi lið mætast en ég vissi að þetta met gat fallið í þessum stórleik - og það var erfitt fyrir mig að halda einbeitingu," sagði Allen.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira