Michael Jordan sýndi gamla takta á æfingu hjá Charlotte Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 11. febrúar 2011 12:30 Michael Jordan sem á árum áður var besti körfuboltamaður heims mætti óvænt á æfingu NBA liðsins Charlotte Bobcats í gær. Nordic Photos/Getty Images
Michael Jordan sem á árum áður var besti körfuboltamaður heims mætti óvænt á æfingu NBA liðsins Charlotte Bobcats í gær. Jordan þarf víst ekki að spyrja um leyfi fyrir slíkt því hann er eigandi félagsins. Hinn 48 ára gamli Jordan hefur tekið virkan þátt í séræfingum leikmanna á undanförnum vikum og í gær fór eigandinn með þetta alla leið og spilaði á æfingunni. Jordan varð sex sinnum meistari með Chicago Bulls á ferlinum og leikmenn Charlotte þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn gamla meistaranum. „Þetta er Mike. Hann er enn með þetta og við fengum að kenna á því," sagði Gerald Wallace leikmaður Charlotte eftir æfinguna. „Hann er ekki með hraðann en hann kann að skjóta og skora - líkt og áður," bætti framherjinn við.Paul Silas þjálfari Charlotte er ánægður með að eigandi liðsins skuli taka virkan þátt. „Hann er ávallt tilbúinn að kenna leikmönnum liðsins það sem hann gerði best. Leikmenn liðsins leggja meira á sig þegar hann mætir á æfingar," sagði Silas sem tók við þjálfun liðsins í vetur eftir að Larry Brown var sagt upp störfum. Charlotte hefur unnið 22 leiki en tapað 30 í vetur en liðið komst í úrslitakeppnina s.l. vor í fyrsta sinn í stuttri sögu liðsins. Liðið er enn með í baráttunni um áttunda sætið í Austurdeildinni en Indiana er sem stendur í því sæti en Charlotte er þar næst í röðinni.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira