Mágur Finnboga ráðinn forstjóri Icelandic Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. október 2011 18:45
Lárus Ásgeirsson, sem ráðinn var í dag forstjóri Icelandic Group, er mágur Finnboga Jónssonar, forstjóra Framtakssjóðs Íslands, eiganda Icelandic Group. Lárus Ásgeirsson er þriðji forstjóri Icelandic á tíu mánuðum, en fyrirtækið er stærsta útflutningsfyrirtæki landsins á sviði frosinna sjáfarafurða og starfar á alþjóðlegum vettvangi. Framtakssjóðurinn, sem er í eigu sautján lífeyrissjóða, eignaðist Icelandic Group fyrr á þessu ári þegar félagið keypti Vestia af Landsbankanum. Í tilkynningu Icelandic um ráðningu Lárusar er farið yfir feril hans og hæfni til að stýra Icelandic Group, en þess ekki getið að hann er mágur Finnboga. Hann hefur reynslu af því að vera framkvæmdarstjóri og staðgengill forstjóra hjá Marel í átján ár. Eftir mjög faglegt ferli var hann ráðinn í þetta starf," segir Herdís Fjeldsted," stjórnarformaður Icelandic Group. Er þetta ekki óheppileg ráðning í ljósi þess að hann er mágur framkvæmdastjóra Framtakssjóðsins, eiganda Icelandic Group. Þarna er framkvæmdastjórinn að ráða mág sinn sem forstjóra í dótturfélagi? „Þetta hefur náttúrulega ekkert með það að gera. Þarna er mikil og víðtæk reynsla sem Lárus hefur sem réð þessu." Hver átti hugmyndina að ráða Lárus? „Við ákveðum þetta í stjórn Icelandic Group. Við fórum í gegnum ferli þar sem þrjátíu og fjórir sóttu um starfið, þrettán voru teknir í viðtal, fjórir af þeim fóru á „shortlist" og sú ákvörðun að lokum tekin að ráða Lárus." Kom Finnbogi ekki að ráðningu mágs síns? „Finnbogi kom alls ekki að þessari ráðningu. Það var Icelandic Group sem tók ákvörðun um ráðningu forstjóra." Hann hlýtur að hafa verið spurður eða hafa skoðun á þessu? „Nei, alls ekki. Það var ekki leitað til Finnboga varðandi þessa ráðningu." Finnbogi Jónsson, sem staddur er erlendis sagði í samtali við fréttastofu rétt fyrir kvöldfréttir að hann hefði enga aðkomu haft að ráðningu Lárusar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira