Kaupa þriðjungshlut í Högum 11. febrúar 2011 20:55 Heildarverðmæti Haga er rúmir 24 milljarðar króna. Mynd/Anton Brink
Arion banki hefur selt dreifðum hópi lífeyrissjóða og öðrum fjárfestum 34% hlut í Högum ásamt kauprétti að 10% viðbótarhlut. Kaupverð er 4,1 milljarður. Skráning í kauphöll er fyrirhuguð síðar á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Hagar eru langstærsta verslunarfyrirtæki landsins og reka meðal annars Hagkaup og Bónus. Félagið sem kaupir kjölfestuhlutinn heitir Búvellir slhf. og stærstu eigendurnir eru Hagamelur ehf., sem er félag í eigu Hallbjörns Karlssonar, Árna Haukssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og Tryggingamiðstöðvarinnar, Gildi lífeyrissjóður, SÍA I og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5. Fram kemur í tilkynningunni að enginn hlutur sé stærri en svo að svari til 8,5% eignarhlutar í Högum. Kaupin eru fjármögnuð með eiginfjárframlögum. „Við sjáum fyrir okkur að skráning Haga geti orðið mikilvægur áfangi í því að endurreisa íslenskan hlutabréfamarkað. Bankinn hefur verið ánægður með rekstur Haga undanfarin misseri þrátt fyrir erfitt árferði og efnahagur félagsins er traustur. Stjórnendur hafa unnið mjög gott starf og fá nú til liðs við sig hluthafahóp sem býr yfir mikilli reynslu á íslenskum smásölumarkaði,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Kaupverðið er 4.140 milljónir króna. Á félaginu hvíla nettó vaxtaberandi skuldir að fjárhæð um 12,5 milljarðar króna miðað við efnahagsreikning félagsins 30. nóvember síðastliðinn og er heildarvirði félagsins samkvæmt því rúmir 24 milljarðar króna. Kaupverðið nemur 10 krónum á hlut en gengi samkvæmt kaupréttinum er 10% hærra. Um kaupinn segir Hallbjörn Karlsson, einn af eigendum Búvalla: „Við sjáum fjárfestingu Búvalla í Högum sem langtímaverkefni og munum leggja áherslu á að félagið einbeiti sér að kjarnastarfsemi sinni. Við viljum að eignarhald félagsins verði sem breiðast, bæði í gegnum lífeyrissjóði og með beinni aðild einstakra hluthafa.“
Tengdar fréttir Söluferlið á Högum á lokasprettinum Viðræður Arion banka við fjárfesta um kaup á kjölfestuhlut í verslanakeðjunni Högum eru nú á lokastigi og býst bankinn við að ganga frá sölu á hlutnum á næstu vikum. 7. febrúar 2011 18:45 Stefnir átti hæsta tilboðið í Haga Stefnir átti hæsta tilboðið í kjölfestuhlut í Högum, en Arion banki hefur unnið að því að selja félagið undanfarna mánuði. Nokkur kergja er sögð í öðrum sem tóku þátt í söluferlinu vegna þessa, enda um að ræða dótturfyrirtæki Arion banka. 10. febrúar 2011 08:02 Vilja kaupa Haga Fjárfestarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson fara fyrir hópi þeirra fjárfesta sem hyggjast kaupa þriðjungshlut í Högum. Sjóður í rekstri Stefnis, verðbréfasjóðs Arion banka kemur líka að kaupunum. Samningaviðræður um kaupin standa nú yfir. 10. febrúar 2011 18:43 Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira
Söluferlið á Högum á lokasprettinum Viðræður Arion banka við fjárfesta um kaup á kjölfestuhlut í verslanakeðjunni Högum eru nú á lokastigi og býst bankinn við að ganga frá sölu á hlutnum á næstu vikum. 7. febrúar 2011 18:45
Stefnir átti hæsta tilboðið í Haga Stefnir átti hæsta tilboðið í kjölfestuhlut í Högum, en Arion banki hefur unnið að því að selja félagið undanfarna mánuði. Nokkur kergja er sögð í öðrum sem tóku þátt í söluferlinu vegna þessa, enda um að ræða dótturfyrirtæki Arion banka. 10. febrúar 2011 08:02
Vilja kaupa Haga Fjárfestarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson fara fyrir hópi þeirra fjárfesta sem hyggjast kaupa þriðjungshlut í Högum. Sjóður í rekstri Stefnis, verðbréfasjóðs Arion banka kemur líka að kaupunum. Samningaviðræður um kaupin standa nú yfir. 10. febrúar 2011 18:43