Markaður með leiguíbúðir nær jafnvægi 8. mars 2011 12:05
Greining Íslandbanka segir að svo virðist sem markaðurinn með leiguíbúðir hafi náð einhvers konar jafnvægi hvað fjölda þinglýstra leigusamninga varðar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í febrúar síðastliðnum var alls 687 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst hér á landi. Eru þetta heldur færri leigusamningar en var þinglýst í febrúar í fyrra þegar þeir voru 741 talsins, sem og í febrúar árið 2009 þegar þeir voru 809 talsins. Þetta er meiri samdráttur á milli ára en mælst hefur undanfarna mánuði. „Sveiflur eru hins vegar talsverðar í þeirri mælingu og því hentugra að horfa í lengri tíma þróun til að áætla hvert markaðurinn er að fara. Þannig hefur tólf mánaða meðaltal í fjölda leigusamninga verið nokkuð stöðugt undanfarið eftir talsverðan vöxt árið 2009. Virðist markaðurinn hafa náð einhvers konar jafnvægi hvað fjölda þinglýstra leigusamninga varðar. Það var Þjóðskrá Íslands sem birti tölur um fjölda leigusamninga í febrúar nú í morgun,“ segir í Morgunkorninu. „Eins og við höfum áður fjallað um þá virðist eðlisbreyting hafi átt sér stað á markaðnum hér á landi með íbúðarhúsnæði þannig að leigumarkaðurinn hefur stækkað sem hlutfall af heildaríbúðarmarkaðinum. Að okkar mati er þessi þróun eðlileg í ljósi aðstæðna þar sem mörg heimili hafa orðið illa úti í hruninu og hafa lítið sem ekkert eigið fé til að tefla fram í íbúðarkaupum. Aðgangur að lánsfé til íbúðakaupa er einnig takmarkaðri en hann var fyrir hrun. Þá eru margir sem ekki hafa viljað leggja sparnað sinn í íbúðakaup á þeim tímum verðlækkunar á íbúðarhúsnæði og mikillar verðbólgu sem einkenndi lengi vel tímabilið eftir hrun. Á móti eru fjárfestar í einhverju mæli farnir að snúa sér að íbúðamarkaðinum í leit að arðsemi í því afar takmarkaða framboði sparnaðarkosta sem eru til staðar í krónum sem er í gjaldeyrishöftum. Leigumarkaðurinn hér á landi hefur verið afar lítill í samanburði við flest önnur lönd. Yfirgnæfandi meirihluti heimila hefur átt það húsnæði sem þau hafa búið í og í flestum tilfellum verið með verðtryggð húsnæðislán og í sumum tilfellum gengisbundin. Þessi uppbygging íbúðarmarkaðarins var ein af ástæðum þess af hverju mörg íslensk heimili fóru afar illa út úr hruninu. Markaðurinn fraus á sama tíma og verð lækkaði og lánin hækkuðu vegna gengisbreytinga og aukinnar verðbólgu. Eigið fé, sem í mörgum tilfellum var afar lítill hluti eignarinnar, brann upp á skömmum tíma. Eðlisbreytingar á þessum markaði er þörf til að draga þessari sterku tengingu milli gengisþróunar og eignarstöðu heimilanna. Stærri og virkari leigumarkaður er skref í þá átt.“
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira