Höskuldur fékk tíu milljóna eingreiðslu Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. mars 2011 12:08 Höskuldur Ólafsson.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fékk tíu milljóna króna eingreiðslu þegar hann hóf störf hjá bankanum 1. júní í fyrra sem reiknast inn í laun hans. Bankastjórar Arion og Íslandsbanka ætla ekki að taka á sig launalækkanir. Samkvæmt ársreikningi Arion banka var Höskuldur Ólafsson bankastjóri með 30 milljónir króna í laun á síðasta ári, en hann tók til starfa 1. júní í fyrra. Reiknað var út að laun hans væru því 4,3 milljónir króna á mánuði, en það gerir hann að launahæsta bankastjóranum hér á landi eftir hrun. Miðað við þetta hækkuðu laun bankastjóra Arion banka um 40 prósent milli ára. Þá hækkuðu laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, um þriðjung en hún var með 2,6 milljónir króna á mánuði í fyrra. Fréttir um launahækkanir bankastjóranna ollu nokkurri reiði í samfélaginu en forsætisráðherra sagði í gær að engin siðleg réttlæting væri á þessum ofurlaunum og framferði bankastjóranna væri óþolandi ögrun og bein ógn við stöðugleika og frið í samfélaginu. Arion banki leiðrétti ekki fréttir um laun bankastjórans fyrstu dagana, en samkvæmt upplýsingum þaðan fékk Höskuldur tíu milljóna króna eingreiðslu þegar hann hóf störf í bankanum og það sé inni í upphæðinni yfir heildarlaun í ársreikningnum, þ.e þeim 30 milljónum króna sem hann fékk á síðasta ári. Höskuldur er því ekki með 4,3 milljónir króna á mánuði heldur 2,9 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka var eingreiðslan vegna áunninna réttinda sem hann var talinn eiga rétt á hjá Valitor, en þar starfaði hann áður. Bankinn vildi hins vegar ekki gefa upp um hvaða áunnu réttindi væri að ræða. Höskuldur Ólafsson hyggst ekki taka á sig launalækkun, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Þá vill Arion banki ekki tjá sig um ummæli forsætisráðherra. Íslandsbanki vill ekki heldur tjá sig um ummæli forsætisráðherra og þá hefur ekki komið til tals í Íslandsbanka að lækka laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra samkvæmt upplýsingum frá bankanum.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Sjá meira