Lánatryggingasjóður kvenna endurvakinn 8. mars 2011 12:17
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samkomulag um lánatryggingasjóð kvenna. Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum. Í tilkynningu segir að áherslur sjóðsins eru eftirfarandi: Að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki. Að stuðla að því að auka hlut kvenna sem eigendur og stjórnendur fyrirtækja. Að auka aðgengi kvenna að fjármagni til fyrirtækjareksturs. Að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi. Að veita ráðgjöf og stuðning við konur sem fá lán og gefa þeim kost á handleiðslu og stuðningi. Að hvetja jaðarhópa kvenna til þátttöku í atvinnulífinu, svo sem innflytjendur. Eignir sjóðsins nema rúmum 70 milljónum króna. Í áætlunum er gert ráð fyrir að samtals verði unnt að veita ábyrgðir fyrir allt að fimmfaldri stofnfjárhæð sjóðsins, eða um 350 milljónum króna. Velferðarráðherra skipaði stjórn lánatryggingasjóðs kvenna í dag í samræmi við reglur sjóðsins en verkefni hennar er að móta lánareglur í samráði við stofnaðila. Fulltrúi ráðherra er Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður, Jón Steindór Valdimarsson, fulltrúi iðnaðarráðherra og Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Reykjavíkurborgar. Vinnumálastofnun mun annast umsýslu og daglegan rekstur sjóðsins og verður nánara fyrirkomulag kynnt síðar á heimasíðu stofnunarinnar. Lánatryggingasjóður kvenna var stofnaður árið 1997 sem tilraunaverkefni félagsmálaráðuneytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og Reykjavíkurborgar til þriggja ára. Verkefnið var framlengt um nokkur ár en árið 2005 var hætt að veita ábyrgðir úr sjóðnum. Haustið 2008 ákváðu stofnaðilar að kanna stöðu og starfsgrundvöll sjóðsins. Farið var yfir starfsemi hans frá upphafi og aflað upplýsinga um atvinnumál kvenna, stöðu þeirra gagnvart lánastofnunum og aðgangi að lánsfé. Einnig voru skoðaðar svipaðar aðgerðir erlendis, meðal annars hjá Evrópusambandinu og í Danmörku. Niðurstaðan var sú að enn sem fyrr væri brýnt að styðja konur við stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði nýsköpunar og því hefur sjóðurinn nú verið endurvakinn.
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira