Scandic hótelin fá umhverfisverðlaun 25. maí 2011 12:07 Kaffið sem veitt er á Scandic er lífrænt
Scandic-keðjan hlýtur verðlaunin fyrir að stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu á Norðurlöndum og um allan heim. Meðvituð umhverfisstefna og litlar einfaldar aðgerðir hafa haft í för með sér mikinn ávinning. Norrænu umhverfisverðlaunin verða afhent ásamt þremur öðrum norrænum verðlaunum, fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist, á Norðurlandaráðsþingi í byrjun nóvember. Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2011 eru veitt fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu. Verðlaunin, sem nema 350.000 dönskum krónum, eru veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum. Verðlaunahafinn er Scandic hótelakeðjan, sem í nær tvo áratugi hefur verið í farabroddi á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu. - Scandic hefur síðan 1994 gengið á undan með góðu fordæmi og dregið úr mengandi áhrifum starfseminnar og hafa margir fylgt þeirra fordæmi, bæði í hótelageiranum og samfélaginu í heild sinni. Scandic hefur sýnt þor með því að gera kröfur til birgja og bjóða gestum að taka þátt í að reyna að uppfylla vistvæn markmið, t.d. með því að minnka þvott og flokka úrgang, skrifar dómnefndin í rökstuðningi sínum. Það var starfsmaður Scandic sem fékk þá hugmynd að leggja til að hótelagestir spöruðu þvott á handklæðum og Scandic var einnig meðal þeirra fyrstu sem notuðu fljótandi sápu. Smáatriði sem hafa haft mikil áhrif og eru notuð á hótelum um allan heim. Á árinu 1993 ákváðu forráðamenn Scandic að bæta umhverfisvitund starfsfólks og hafa rúmlega 11.000 starfsmenn fengið fræðslu um umhverfismál. Þá hafa 19.000 hótelaherbergi verið byggð úr sjálfbærum byggingarefnum. Alls hafa 114 af 147 hótelum í keðjunni fengið Svansmerkið, umhverfisviðurkenningu Norrænu ráðherranefndarinnar, sem gerir hvað ströngustu kröfur til umhverfisverndar. Vatnsnotkun Scandic hefur frá 1994 minnkað um 17%, orkunotkun um 22% og koltvísýringslosun um 38%. Kaffið sem veitt er á Scandic er lífrænt og vatnið er ekki úr plastflöskum. Samkvæmt umhverfisbókhaldi Scandic hefur koltvísýringslosun vegna vatnsflutninga minnkað um 160 tonn á ári. Náttúru- og umhverfisveðlaun Norðurlandaráðs byggja á norrænum gildum um sjálfbærni og virðingu fyrir náttúrunni. Þau eru veitt stofnun, fyrirtæki eða einstaklingi, sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir náttúru og umhverfi í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum náttúru og umhverfi til góða. Náttúru- og umhverfisverðlaunin nema, eins og verðlaunin fyrir bókmenntir, tónlist og kvikmyndir, 350.000 dönskum krónum (u.þ.b. 50.000 evrum) og verða afhent við hátíðlega athöfn ásamt hinum verðlaununum á árlegu þingi Norðurlandaráðs þann 2. nóvember 2011.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Sjá meira