Raungengi krónunnar lækkaði í desember 6. janúar 2011 11:04
Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,6% í desember síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Er þetta í takti við þróunina á nafngengi krónunnar á sama tímabili sem og þróun verðlags. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandbanka. Þar segir að þannig lækkaði nafngengi krónunnar um 0,8% á milli mánaða og verðlag hækkaði um 0,3%. Gildi raungengisins á þennan kvarða er nú 77,3 stig sem er ríflega 14% hærra en það var í desember árið á undan. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabanki Íslands birti í gær. Raungengi íslensku krónunnar á síðasta ári á ofangreindan mælikvarða var að meðaltali 74,5 stig og hækkaði um 6,4% frá árinu 2009. Var raungengið þó enn langt frá sínu langtímameðaltali, eða ríflega 23% undir meðaltali áranna 1980-2009. Munurinn var þó enn meiri ef stuðst er við hlutfallslegan launakostnað. Þannig var raungengið á þann kvarða ríflega 26% undir meðaltali síðustu þriggja áratuga og er sú þróun til marks um það hrun í kaupmætti á alþjóðlegum mælikvarða sem orðið hefur hér á landi í kjölfar bankahrunsins. Þó var staðan heldur betri á síðasta ári en árið 2009 þar sem raungengið á þennan kvarða hækkaði um 13% milli ára.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira