Atvinnupólitík Samtaka atvinnulífsins Vilmundur Jósefsson skrifar 29. september 2011 06:00 Í Fréttablaðinu í gær sakar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mig um að hafa farið með ósannindi á fundi SA um atvinnumál í Hörpu á mánudaginn. Ekki vil ég sitja undir því en á fundinum lýsti ég hvernig ríkisstjórnin hefur ítrekað hvorki getað né viljað standa við eigin yfirlýsingar, m.a. um málefni iðnaðarráðherra. Í stöðugleikasáttmálanum í júní 2009 lofaði ríkisstjórnin að greiða götu framkvæmda sem þegar voru í þjóðhagsáætlun, hraða undirbúningi ýmissa verkefna og ljúka viðræðum við lífeyrissjóði um fjármögnun stórra verkefna. Í október sama ár var þessi vilji ítrekaður. Í kjölfarið sögðu SA og ASÍ sig frá sáttmálanum vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar. Í yfirlýsingu í tengslum við kjarasamningana sl. vor lofaði ríkisstjórnin enn sömu atriðum. Þar segir m.a. að það sé markmið stjórnvalda að fjárfesting verði ekki minni en 350 ma.kr. á ári í lok samningstímans en hún var 200 ma.kr. 2010. Gera átti hagvaxtar- og fjárfestingaráætlun í maí sl. Heitið var að greiða fyrir aukinni fjárfestingu sem víðast og einkanlega þeim sem auka útflutningstekjur. Auka þyrfti hagvöxt umfram horfur til að markmið um minna atvinnuleysi næðust. Þessi áform hafa að litlu orðið. Áætlunin hefur ekki verið lögð fram. Fyrirheitin eru góð en efndirnar litlar. Ályktunin sem ég dreg er að hvorki er unnt að treysta orðum né skriflegum yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar. Vegna orða iðnaðarráðherra um að SA séu blinduð af flokkapólitík er ítrekað að SA stunda atvinnupólitík og vilja vinna með öllum stjórnmálaflokkum að því að auka fjárfestingar hér á landi, efla hagvöxt og draga úr atvinnuleysi. Hagsmunir fólks og fyrirtækja fara algerlega saman. SA vilja ekki að hér grafi um sig langtímaatvinnuleysi. SA vilja að stjórnvöld vinni með atvinnulífinu í stað þess að vera sífellt á móti, hindra, fresta og þvælast fyrir. Ef afstaða SA í þessum efnum er andstæð stefnu Samfylkingarinnar er það miður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Í Fréttablaðinu í gær sakar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mig um að hafa farið með ósannindi á fundi SA um atvinnumál í Hörpu á mánudaginn. Ekki vil ég sitja undir því en á fundinum lýsti ég hvernig ríkisstjórnin hefur ítrekað hvorki getað né viljað standa við eigin yfirlýsingar, m.a. um málefni iðnaðarráðherra. Í stöðugleikasáttmálanum í júní 2009 lofaði ríkisstjórnin að greiða götu framkvæmda sem þegar voru í þjóðhagsáætlun, hraða undirbúningi ýmissa verkefna og ljúka viðræðum við lífeyrissjóði um fjármögnun stórra verkefna. Í október sama ár var þessi vilji ítrekaður. Í kjölfarið sögðu SA og ASÍ sig frá sáttmálanum vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar. Í yfirlýsingu í tengslum við kjarasamningana sl. vor lofaði ríkisstjórnin enn sömu atriðum. Þar segir m.a. að það sé markmið stjórnvalda að fjárfesting verði ekki minni en 350 ma.kr. á ári í lok samningstímans en hún var 200 ma.kr. 2010. Gera átti hagvaxtar- og fjárfestingaráætlun í maí sl. Heitið var að greiða fyrir aukinni fjárfestingu sem víðast og einkanlega þeim sem auka útflutningstekjur. Auka þyrfti hagvöxt umfram horfur til að markmið um minna atvinnuleysi næðust. Þessi áform hafa að litlu orðið. Áætlunin hefur ekki verið lögð fram. Fyrirheitin eru góð en efndirnar litlar. Ályktunin sem ég dreg er að hvorki er unnt að treysta orðum né skriflegum yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar. Vegna orða iðnaðarráðherra um að SA séu blinduð af flokkapólitík er ítrekað að SA stunda atvinnupólitík og vilja vinna með öllum stjórnmálaflokkum að því að auka fjárfestingar hér á landi, efla hagvöxt og draga úr atvinnuleysi. Hagsmunir fólks og fyrirtækja fara algerlega saman. SA vilja ekki að hér grafi um sig langtímaatvinnuleysi. SA vilja að stjórnvöld vinni með atvinnulífinu í stað þess að vera sífellt á móti, hindra, fresta og þvælast fyrir. Ef afstaða SA í þessum efnum er andstæð stefnu Samfylkingarinnar er það miður.
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar