Framtakssjóður eykur við hlut sinn í N1 29. september 2011 10:27 Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs. Mynd/GVA
Framtakssjóður Íslands hefur keypt um 39% hlutafjár í verslunar- og þjónustufyrirtækinu N1 af Arion banka hf. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þar af sé 10% hlutur sem fyrrum skuldabréfaeigendur N1 eiga kauprétt á síðar. Áður hafði Framtakssjóðurinn keypt 15,8% hlut af Íslandsbanka hf. og Skilanefnd Glitnis. Að því gefnu að kaupréttir í N1 verði nýttir mun Framtakssjóður Íslands fara með tæplega 45% eignarhlut í N1. Stefnt er að skráningu N1 í kauphöll ekki seinna en á miðju ári 2013. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands segir ánægjulegt að Framtakssjóðurinn hafi fengið tækifæri til að auka enn frekar eignarhlut sinn í N1 „og þar með koma með sterkum hætti að mikilvægu fyrirtæki í íslensku efnahagslífi sem undanfarið hefur að langstærstum hluta verið í eigu banka. N1 hefur alla burði til að standa sig vel í öflugri samkeppni á neytenda- og fyrirtækjamarkaði á komandi árum. Við munum leggja áherslu á að bæta rekstur félagsins enn frekar og koma síðan félaginu á hlutabréfamarkað með dreifðu eignarhaldi." Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka segir að N1 sé stærsta félag sinnar tegundar á Íslandi sem gegni mikilvægu þjónustuhlutverki um land allt. „Markmið bankans í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins var að tryggja áframhaldandi rekstur þess og það markmið hefur nú náðst. Arion banki ætlaði sér aldrei að vera langtíma eigandi félagsins og telur mikilvægt að koma félaginu sem fyrst í almenna eigu. Þau áform hafa nú gengið eftir með sölunni á N1 til Framtakssjóðsins sem er í eigu nokkurra lífeyrissjóða landsins. Arion banki telur mjög mikilvægt að skrá á markað þau félög sem þar eiga heima í því augnamiði að endurreisa íslenska hlutabréfamarkaðinn. Sú ákvörðun sem nú liggur fyrir að hálfu Framtakssjóðsins um skráningu N1 á markað var ein af meginforsendum fyrir sölu bankans á sínum hlut. Við teljum þetta góða niðurstöðu fyrir bankann og N1."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira