Staðfest að Forlagið þurfi að greiða 25 milljónir í sekt 29. september 2011 12:00 Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri Forlagsins.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftilitsins frá því í júlí að Forlagið hafi brotið gegn samkeppnislögum og skuli greiða 25 milljónir króna í sekt. Forlagið varð til árið 2008 með samruna tveggja fyrirtækja, JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. „Við meðferð samrunamálsins hjá Samkeppniseftirlitinu hafði Forlagið frumkvæði að því að setja fram hugmyndir að skilyrðum sem ryðja myndu úr vegi samkeppnishindrunum sem eftirlitið hafði komið auga á. Sátt náðist í málinu þar sem Forlagið skuldbatt sig til að hlíta tilteknum skilyrðum til að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans,“ segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. „Í júlímánuði sl. komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Forlagið hefði brotið gegn þessum skilyrðum. Fólust brotin í því að Forlagið braut gegn banni við því að birta smásöluverð bóka og banni við því að veita bóksölum afslætti sem fælu í sér óeðlilega mismunun Forlagsins á milli þeirra. Skilyrðum þessum var m.a. ætlað að tryggja að starfsemi hins öfluga nýja útgefanda myndi ekki raska samkeppni í endursölu á bókum. Samkeppniseftirlitið lagði 25 m.kr. stjórnvaldssekt á Forlagið vegna þessara brota,“ segir ennfremur. Forlagið skaut ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. „Byggði Forlagið m.a. á því að Samkeppniseftilitið hefði brotið gegn stjórnsýslulögum með málsmeðferð sinni og m.a. farið gegn stjórnarskrá. Forlagið taldi einnig að forsendur fyrir umræddri sátt væru breyttar þar sem staða þess væri veikari nú en hún var í upphafi. Þá hefðu álagðar sektir verið óhóflegar þar sem meint brot hefðu verið framin af gáleysi,“ segir að auki. Nú hefur áfrýjunarnefndin komist að niðurstöðu og staðfestir brot Forlagsins og að sektin hafi verið hæfileg. „Bendir nefndin á að brýnt sé að Forlagið virði skilyrði sem sett voru fyrir samrunanum og að treysta megi því að sáttir í slíkum málum séu meira en orðin tóm. Þetta eigi ekki síst við í þessu máli þar sem Forlagið hafi sjálft tekið þátt í mótun skilyrðanna. Orð og athafnir Forlagsins bendi til þess að fyrirtækið hafi ekki tekið umrædd skilyrði alvarlega. Segir nefndin að í málum af þessum toga verði álagðar sektir að hafa varnaðaráhrif og tryggja að fyrirtæki fari eftir skilyrðum sem þau hafi heitið að virða.“
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira