Viðskipti innlent

Vöruskiptin 10,6 milljörðum lakari en í fyrra

Fyrstu fimm mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 240,8 milljarða króna en inn fyrir 199,7 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 41,0 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 51,6 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 10,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 49,9 milljarða króna. Vöruskiptin í maí voru því hagstæð um 6,8 milljarða króna. Í maí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 16,5 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu fimm mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 25,5 milljörðum eða 11,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,2% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.

Fyrstu fimm mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 36,1 milljarði eða 22,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti varð í öllum liðum innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×