Stjórn Fons greiði skaðabætur vegna láns til huldufélags í Panama Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. júlí 2011 18:30
Skiptastjóri þrotabús Fons hefur ákveðið að krefja fyrrverandi stjórnarmenn Fons um þrjá milljarða króna í skaðabætur vegna milljarða láns Fons til huldufélagsins Pace Associates frá Panama. Hann hefur enn engar upplýsingar fengið um afdrif peninganna. Hinn 24. apríl 2007 voru millifærðir þrír milljarðar króna af reikningi Fons á Íslandi á reikning félagsins Pace Associates Corp. hjá Landsbankanum í Lúxemborg, en Pace er skráð í Panama. Sex dögum síðar, hinn 30. apríl var gerður lánasamningur milli Pace og Fons þar sem lánið er fært til bókar og það afskrifað samdægurs í bókhaldi Fons. Óskar Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri þrotabús Fons, hefur í á annað ár verið að reyna að komast að því hvað varð um þessa peninga. Landsbankinn í Lúxemborg vill ekki veita þrotabúinu upplýsingar, hvorki um félagið né um hvernig þessum peningum var ráðstafað af Pace með vísan til bankaleyndar. Gjalddaginn á láninu var 30. apríl 2010 og sendi skiptastjórinn bréf á heimilisfang Pace Associates og gerði kröfu um greiðslu. Engin greiðsla barst og nú hefur skiptastjórinn krafið þáverandi stjórnarmenn í Fons um greiðslu skaðabóta vegna þess tjóns sem þeir kunna að hafa valdið Fons með lánveitingunni en lánið var veitt án trygginga. Hefur hann sent þeim bréf þess efnis, en um er að ræða þá Pálma Haraldsson, Jóhannes Kristinsson og Einar Þór Sverrisson, lögmann. Þeir eru krafðir sameiginlega um þrjá milljarða króna með vöxtum. Jóhannes var meðfjárfestir Pálma í Fons, en hann er einnig umsvifamikill í landbúnaði hér á landi sem og fjárfestingum í Lúxemborg. Pálmi Haraldsson gaf þær skýringar í skýrslutöku hjá Óskari Sigurðssyni skiptastjóra að lánið til Pace, sem hafi verið vogunarsjóður, hafi átt að nota til að kaupa lóðir undir fasteignaverkefni á Indlandi. Ekki liggur fyrir hvort ráðist hafi verið í þessar fjárfestingar. Jóhannes Kristinsson vísaði til þess að þetta hafi verið samstarfsverkefni með Landsbankanum í Lúxemborg, þannig hafi þetta verið kynnt fyrir stjórn Fons. Óskar Sigurðsson sagði við fréttastofu í dag að þremenningarnir hefðu hafnað kröfunum en í bréfum þeirra vísa þeir til þess að lánið hafi ekki verið stórt á sínum tíma á mælikvarða Fons sem var félag í áhættufjárfestingum og vísa þeir því skaðabótaábyrgð á bug. Skiptastjóri Fons hefur ekki tekið ákvörðun um málshöfðun en hann segir að upplýsingar vanti um Pace Associates Corp til að taka ákvörðun um slíkt. Óskar segir að lítið finnist í fundargerðum stjórnar Fons um lánið til Pace Associates. Lánið var afskrifað í dagbókarfærslum Fons sama dag og lánasamningurinn var undirritaður, eins og áður segir, en ekkert var bókað um lánveitinguna hjá stjórn Fons fyrr en á stjórnarfundi í maí 2007. Þá var bókað að ákveðið hafi verið að setja 3 ma.kr í „áhættufjárfestingarsjóðinn Pace." Francis Perez og Leticia Montoya eru skráð með fyrirsvar fyrir Pace Associates Corp. Þau hafa ekki svarað bréfum skiptastjórans og í raun er lítið vitað um þau. Pálmi Haraldsson svaraði ekki tölvupósti fréttastofunnar, en þar var óskað eftir upplýsingum um í hvað peningarnir fóru og í hvaða tilgreindu fasteignaverkefni á Indlandi félagið hafi haft til skoðunar þegar lánið til Pace Associates var veitt. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira