Fá að kaupa í Högum á genginu 11-13,5 Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. nóvember 2011 13:32
Almenningi og fagfjárfestum gefst tækifæri á að kaupa í 20-30% af útgefnum hlutum í Högum hf á genginu 11-13,5 krónur á hlut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Arion banki sendi frá sér í dag. Hluturinn er í eigu Eignarbjargs, sem er dótturfélag Arion banka. Eignabjarg hefur þegar selt 44% hlut til hóps undir forystu Hallbjörns Karlssonar og Árna Haukssonar, en í þeim hópi voru jafnframt lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar. Eignabjarg mun svo halda eftir um 20-30% eignarhlut þar til á næsta ári, fram yfir fyrirhugaða skráningu Haga í Kauphöll. Markmiðið er að útboðið geri Högum kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár og marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum og er bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu, en jafnframt er markmið seljandans að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. Heildarsöluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 2,7-4,9 milljörðum króna segir í tilkynningu frá Arion banka.Útboðið nemur 20% af útgefnum hlutum í Högum hf. þar af eru 12,5% ætluð tilboðsbók og 7,5% ætluð netáskrift. Seljandi kann þó að gera breytingar á þeirri skiptingu ef eftirspurn fjárfesta gefur tilefni til þess og mun þá hafa markmið útboðsins að leiðarljósi. Seljandi áskilur sér jafnframt rétt til að stækka útboðið í allt að 30% af útgefnu hlutafé. Hagar reka 62 verslanir og fjögur vöruhús, en hjá fyrirtækinu starfa yfir 2.000 starfsmenn í um 1.300 stöðugildum.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira