Ráðuneytið skiptir sér ekki af sölu Byrs 16. júní 2011 08:00 Byr Er í eigu slitastjórnar en í vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins. Fréttablaðið/stefán
Fjármálaráðuneytið hefur ekki kallað sérstaklega eftir upplýsingum um aðkomu fyrirtækisins Arctica Finance að sölunni á Byr sparisjóði. „Nei, mér er ekki kunnugt um það," segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. Hún segir að ef starfsmönnum ráðuneytisins þætti eitthvað athugavert við mál af þeim toga yrði leitað eftir upplýsingum. Nær allt hlutafé í Byr, eða 95 prósent, er í eigu slitastjórnar sjóðsins en í vörslu og umsjón ráðuneytisins, að því er segir í samkomulagi um eignarhaldið. Arctica Finance var eitt fyrirtækjanna sem tók þátt í útboði um að annast hlutafjárhækkun fyrir Byr, sem er undanfari fyrirhugaðrar sölu fyrirtækisins. Fyrirtækið varð að lokum fyrir valinu.Rósa Björk BrynjólfsdóttirÞetta hefur sætt gagnrýni og bent hefur verið á að framkvæmdastjóri Arctica Finance, Stefán Þór Bjarnason, sé eiginmaður Evu Bryndísar Helgadóttur, formanns slitastjórnarinnar. Aðrir stjórnarmenn í Arctica Finance séu meðal annars móðurbróðir Evu Bryndísar og einnig kollegi hennar á lögmannsstofunni Mandat. Í yfirlýsingu frá Byr í kjölfar fréttaflutnings RÚV af málinu kom fram að Eva Bryndís hefði hvergi komið nærri ákvörðuninni. Halldór Friðrik Þorsteinsson, forstjóri HF verðbréfa, sem einnig buðu í verkið, skrifaði grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann gagnrýndi málið af hörku. Í greininni fullyrðir Halldór að nokkru áður en útboðið var kynnt fyrir fyrirtækjum hafi undirverktakar Arctica verið ráðnir til Byrs til að undirbúa söluna. Halldór sagði hugsanlegt að vinnubrögð sem þessi kynnu að fæla frá sómakæra fjárfesta sem ella hefðu haft áhuga á að kaupa í Byr. Hann kallaði eftir viðbrögðum frá fjármálaráðuneytinu vegna málsins og sagði nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í af festu. Rósa Björk segir að ráðuneytið vilji ekki tjá sig um söluferlið eða aðkomu Arctica þar sem ferlið standi enn yfir og því sé óeðlilegt að ráðuneytið hafi af því afskipti. „Ef við teljum okkur vera með allt okkar á hreinu og í söluferli sem sé alveg pottþétt – sem við teljum okkur vera – þá erum við ekki að fara að taka undir einhverja gagnrýni á málið," segir Rósa. Hún segir að slitastjórnin og Fjármálaeftirlitið (FME) beri mesta ábyrgð á málinu. „FME er eftirlitsaðilinn með því að þetta sé allt gert eftir lögum og reglum. Við treystum því að það sé í góðum farvegi," segir hún.stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira