Milljarða afskriftir vegna Fasteignar 16. nóvember 2011 00:01
Kröfuhafar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar munu þurfa að afskrifa milljarða króna vegna byggingar Háskólans í Reykjavík, ógjaldfærni Álftaness og lánabreytinga annarra sveitarfélaga sem átt hafa hlut í félaginu. Stærstu kröfuhafar þess eru Íslandsbanki og skilanefnd Glitnis. Heimildir Fréttablaðsins herma að Fasteign verði skipt upp í móðurfélag og þrjú dótturfélög samkvæmt tillögum sem lagðar verða fyrir hluthafafund félagsins í lok þessa mánaðar. Eignir Reykjanesbæjar verða í einu félaginu, eignir annarra sveitarfélaga sem standa að Fasteign í öðru og afgangurinn af eignum Fasteignar í hinu þriðja. Skuldir verða látnar fylgja öllum eignunum en hluti þeirra verður afskrifaður. Stefnt er að því að þessari niðurstöðu verði hrint í framkvæmd fyrir komandi áramót. Stærstur hluti afskrifta mun koma til vegna byggingar Háskólans í Reykjavík. Kostnaður vegna þeirrar framkvæmdar stóð í rúmum 15 milljörðum króna um síðustu áramót, samkvæmt ársreikningi Fasteignar. Háskólinn greiddi rúman milljarð króna í leigu vegna þessa á árinu 2010, sem hafði þau áhrif að rekstrarafkoma hans var neikvæð um 451 milljón króna á síðasta ári. Endursamið verður um þessa leigu í endurskipulagningunni. Fasteign skilaði inn ársreikningi í lok september síðastliðins. Þar kemur fram að félagið hafi tapað 1,3 milljörðum króna á síðasta ári þrátt fyrir að leigutekjur þess hafi verið um 2,5 milljarðar króna miðað við gengi dagsins í dag. Félagið skuldaði um 44,5 milljarða króna um síðustu áramót. Nánar er fjallað um málið í Markaðinum í Fréttablaðinu í dag.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira