Viðskipti innlent

Starfsmenn FME og Sérstaks saksóknara fræðast um fjársvik

Um fimmtíu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins (FME) og Sérstaks saksóknarar hafa lokið þriggja daga námskeiði um fjársvik.

Það var sérfræðingurinn Gerard Zack sem hélt námskeiðið en hann hefur 30 ára reynslu af rannsóknum og kennslu á sviði fjársvika.

Á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins segir að á námskeiðinu var meðal annars fjallað um árskýrslusvik, svo sem óviðeigandi tekjufærslur, óviðeigandi verðmat eigna og ófullnægjandi skýringar.

Að auki var fjallað um ábyrgð endurskoðenda, lánasvik, innherjaáhættu, auðgunarbrot og hagsmunaárekstra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×