Viðskipti innlent

R&I staðfestir lánshæfiseinkunn Íslands

Japanska matsfyrirtækið R&I hefur staðfest lánshæfiseinkunn Íslands sem BB+. Jafnframt hefur fyrirtækið breytt horfum úr neikvæðum og í stöðugar.

Í tilkynningu um málið frá R&I segir m.a. að staða hagkerfisins hafi batnað nokkuð frá því að botni kreppunnar var náð hér á landi á fjórða ársfjórðungi 2010. Nefna þeir að hagvöxtur hafi tekið við sér, atvinnuleysi hafi minnkað, raunlaun hafi hækkað og að miklum halla á viðskiptajöfnuði hafi verið snúið í afgang.

Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka segir að R&I hefur mun minni áhyggjur af því að Icesave-deilan sé ennþá óleyst en það hafði fyrir ári síðan þegar R&I lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í spákaupmennskuflokk. Telur R&I að þrátt fyrir að Íslendingar þurfi að standa við skuldbindingu vegna Icesave þá muni það ekki leiða til mikillar skuldaaukningar á íslenska ríkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×