Hagnaður Landsbankans 27,2 milljarðar í fyrra 1. apríl 2011 12:57
Afkoma NBI hf. (Landsbankans) var jákvæð um 27,2 milljarða króna eftir skatta í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 17,3%. Til samanburðar nam hagnaður ársins 2009 14,3 milljörðum króna og var arðsemi eigin fjár þá 10,0%. Í tilkynningu segir að sérstök gjaldfærsla sé í reikningnum til að mæta dómum sem fallið hafa á árinu 2010 og snemma árs 2011 um lögmæti lánasamninga erlendra lána hjá bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Hún nemur 18,1 milljarði króna. Eiginfjárhlutfall Landsbankans er nú 19,5% og hefur hækkað um 4,6% á árinu. Núverandi eiginfjárhlutfall er þó vel umfram það 16% lágmark eiginfjárhlutfalls sem Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um . ,,Landsbankinn tók miklum breytingum á árinu 2010 og er enn að breytast. Ný stefna bankans sem samþykkt var síðastliðið haust setur fram metnaðarfulla framtíðarsýn. Í henni er lögð áhersla á úrvinnslu skuldavanda heimila og fyrirtækja og að bæta þjónustu bankans til hagsbóta fyrir viðskiptavini," segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans. „Við viljum tryggja ávinning af rekstri bankans bæði fyrir samfélag og eigendur og laða að honum úrvals starfsfólk. Markmiðið sem við vinnum eftir er skýrt; við viljum vera traustur samherji viðskiptavina í fjármálum og standa undir þeirri ábyrgð að vera Landsbankinn þinn." Um stöðu bankans segir Steinþór: ,,Afkoman á árinu 2010 var góð og bankinn stendur styrkum fótum. Þrengingar og óvissa í efnahagsmálum eru viðvarandi og því er mikilvægt að Landsbankinn búi yfir miklum styrk, þannig að hann geti veitt öfluga fjármálaþjónustu og verið það hreyfiafl í samfélaginu sem starfsmenn hans hafa einsett sér að hann verði."
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira