Landsbankatoppar fengu 80 milljónir í starfslokagreiðslur 1. apríl 2011 13:32 Mynd: GVA
Æðstu yfirmenn Landsbankans (NBI) fengu samtals rúmlega 80 milljónir kr. í starfslokagreiðslur á síðasta ári þegar þeir létu af störfum. Um er að ræða Ásmund Stefánsson fyrrum bankastjóra og fimm framkvæmdastjóra bankans. Í ársskýrslu Landsbankans kemur fram að starfslokagreiðsla Ásmundar nam 9,3 milljónum kr. og kom til viðbótar launum hans upp á 6 milljónir kr. en Ásmundur lét af starfi bankastjóra um mitt síðasta ár. Þessi starfslokagreiðsla til Ásmundar bliknar þó og blánar í samanburði við það sem fimm framkvæmdastjórar bankans fengu í sinn hlut þegar þeir létu af störfum s.l. haust í tengslum við skipulagsbreytingar. Þar var samtals um að ræða tæplega 71 milljón kr. eða um 14 milljónir kr. fyrir hvern þeirra að meðaltali. Þær greiðslur koma ofan á laun þessarar fimm manna sem námu 74,5 milljónum kr. Samtals fengu þeir því greiddar rúmlega 145 milljónir kr. frá bankanum í fyrra. Framkvæmdastjórarnir fyrrverandi sem hér um ræðir eru Atli Atlason, Anna Bjarney Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Gunnar Viðar og Jón Þorsteinn Oddleifsson. Athygli vekur í skýrslunni að mánaðarlaun núverandi bankastjóra, Steinþórs Pálssonar, eru lægri en annarra núverandi framkvæmdastjóra bankans. Steinþór er sem kunnugt er með 1,1 milljón kr. í mánaðarlaun en framkvæmdastjórarnir eru með 1,5 milljón kr. í mánaðarlaun.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira