Viðsjárvert veður tækifæri til að skáka þeim fremstu 1. apríl 2011 12:39 Belginn Jérôme d'Amrbosio á Marussia Virgin bíl á brautinni í Melbourne í Ástralíu um síðustu helgi. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
John Booth, yfirmaður Marussia Virgin liðsins sem byrjaði að keppa í Formúlu 1 í fyrra segir að lið sitt hafi byrjað þetta keppnistímabil betur, en liðið byrjaði í fyrra. Fyrsta mót ársins var í Ástralíu um síðustu helgi. Formúlu 1 lið ferðast mikið á næstunni, því keppt verður í Malasíu um aðra helgi og Kína helgina þar á eftir. „Það að við ferðumst á fjarlægar slóðir þýðir að við getum ekki mætt með nýja hluti, fyrr en við mætum með endurbætur í mótið í Tyrklandi. Við einbeitum okkur að því að safna eins miklu af upplýsingum og mögulegt er, til að nota í þróun bílsins í stærri skrefum á keppnistímabilinu", sagði Booth í fréttatilkynningu frá liði sínu. Hann segir að liðið hafi verið í vandræðum með áreiðanleika bílsins á sama tíma í fyrra, en Virgin liðið byrjaði að keppa 2010 og rússneski sportbílaframleiðandinn Marussia keypti síðan hlut í liðinu á árinu og liðið kallast nú Marussia Virgin fullu nafni. „Á sama tíma í fyrra vorum við í vandræðum með bílanna vegna bilanna, en við höfum núna sýnt að við höfum náð tökum á því atriði. Við vitum hvað gjöra skal að tjaldabaki og það besta sem við getum gert er að skila bílum okkar í endamark", sagði Booth. "Eftir lágt hitastig í Ástralíu, þá færum við okkur til Kuala Lumpur (í Malasíu) þar sem mikill hiti og raki eru meiriháttar viðfangsefni. Bæði fyrir bíla og ökumenn. Úrhellisrigning sem við höfum séð þar og hafa stöðvað mót áður fyrr eru líka tækifæri til að skáka þeim sem venjulega eru fremstir og gera mótið að einskonar happdrætti. Það er gott fyrir okkur og áhorfendur." "Sepang brautin er með tvo mjög langa beina kafla, hæðarmismun og hraðar beygjur sem gera mótið skemmtilegt fyrir ökumenn. Vitanlega hefur engin ekið á Pirelli dekkjunum við það hitastig sem þarna er. Dekkaslitið var ekki eins mikið og búist var við, en það gæti komið á óvart í Malasíu." Ökumenn Marussia Virgin eru Þjóðverjinn Timo Glock og nýliðnn Jérôme d'Amrbosio frá Belgíu. "Timo þekkir brautina vel, en Jérôme keppir í fyrsta skipti á Sepang. Hann þarf að læra á brautina, sem hann hefur verið að gera í ökuhermi, en hann þarf líka að upplifa að keyra heilt mót í malasískum hita og raka", sagði Booth.
Formúla Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti