Iðnaðarráðherra ánægður með kísilverið í Helguvík 17. febrúar 2011 13:31 „
Fyrir utan ákvörðun um stækkun álversins í Straumsvík er þetta fyrsta stóra erlenda nýfjárfestingin eftir bankahrun. Þess vegna hefur hún þýðingu í efnahagslegri endurreisn landsins," segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra um byggingu á nýju kísilveri í Helguvík. „Hún mun einnig bæta atvinnuástandið á Reykjanesi en á því er brýn þörf. Ákvörðun GSM að taka þátt í verkefninu er til vitnis um að erlendir fjárfestar telja óhætt að gera samninga til langs tíma á Íslandi og það eru jákvæð skilaboð í alþjóðlegu samhengi.Síðan gæti þetta verið upphafið að þróun í átt til framleiðslu á hreinkísli hér á landi og þátttöku Íslendinga í vaxandi iðnaði sem tengist sólarrafhlöðum. Græn orka sem nýtist til að beisla sólarorku er draumur margra."Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir byggingu kísilversins vera tímamót. „Þessir samningar eru fyrsta mikilvæga vísbendingin um að þau stóru atvinnuskapandi verkefni sem við höfum ótrauð þurft að kosta og berjast fyrir eru raunhæf og skammt undan," segir Árni.„Þegar álversverkefnið gengur síðan eftir þýðir þetta algjör umskipti fyrir íbúa á Suðurnesjum og fyrir bæjarfélagið!Við munum stíga hratt út úr því ömurlega ástandi að búa við mesta atvinnuleysið og búa á láglaunasvæði yfir í að hafa vel launuð og örugg störf fyrir flesta."Magnús Garðarsson, forstjóri Íslenska kísilfélagsins ehf, segir að mikil vinna undanfarinna fjögurra ára sé nú að skila sér:„ Ég er þakklátur fyrir það að þetta verkefni sem við höfum unnið að í fjögur ár skuli nú vera komið í höfn. Það hefur verið mjög uppörvandi hvað allir aðilar sem komið hafa að málinu á Íslandi hafa lagt sig fram um að greiða götu þess. Ég vil sérstaklega þakka Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra, Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra og Árna Sigfússyni, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, fyrir þeirra góða stuðning og embættismönnum fyrir að hafa lagt á sig ómælda vinnu á síðustu mánuðum til þess að ljúka öllum frágangi," segir Magnús.„Alan Kestenbaum hjá Globe Speciality Metal á heiður skilinn fyrir að deila með okkur þeirri sýn að Ísland sé kjörinn staður fyrir einhverja hagkvæmustu kísilframleiðslu sem um getur, auk þess sem hún byggir á nýtingu endurnýjanlegrar og samkeppnishæfrar orku.."
Tengdar fréttir Kísilverið í Helguvík skapar 300 ársverk Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjist í byrjun sumars. Verksmiðjuhús munu rísa á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. 17. febrúar 2011 13:26 Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira
Kísilverið í Helguvík skapar 300 ársverk Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjist í byrjun sumars. Verksmiðjuhús munu rísa á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. 17. febrúar 2011 13:26