Landsbankinn og SpKef sameinast í Reykjanesbæ 10. mars 2011 11:26
Útibú Landsbankans og SpKef í Reykjanesbæ hafa verið sameinuð undir eina stjórn undir nafni Landsbankans. Í tilkynningu segir að nýtt útibú verður til húsa þar sem áður var útibú og höfuðstöðvar SpKef við Tjarnargötu í Reykjanesbæ og afgreiðslur verða áfram í Njarðvík, Garði, Vogum og Sandgerði þar sem SpKef hafði afgreiðslu. Að auki munu afgreiðslur Landsbankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar heyra undir hið sameinaða útibú. Staða útibússtjóra hins nýja sameinaða útibús var auglýst laust til umsóknar í dag. Allir þeir starfsmenn sem unnið hafa við afgreiðslu í útibúum Landsbankans og SpKef í Reykjanesbæ og á fyrrgreindum afgreiðslustöðum munu starfa áfram hjá sameinuðu fyrirtæki. Starfsmenn Landsbankans sem fyrir voru í útibúi bankans við Hafnargötu í Reykjanesbæ munu á næstunni flytjast í útibúið í Tjarnargötu. Enn er unnið að útfærslu hugmynda vegna starfa sem unnin voru í höfuðstöðvum SpKef í Reykjanesbæ. Þeir Almar Þór Sveinsson útibússtjóri Landsbankans og Einar Hannesson fyrrverandi sparisjóðsstjóri munu leiða starfsemina þar til ráðinn hefur verið útibússtjóri. Berglind Rut Hauksdóttir sem verið hefur afgreiðslustjóri í útibúi Landsbankans verður aðstoðarútibússtjóri hins nýja sameinaða útibús, Alda A. Gylfadóttir sem áður var sérfræðingur á fyrirtækjasviði SpKef verður þjónustustjóri fyrirtækja, en Björn Kristinsson sem áður var útibússtjóri SpKef á Tjarnargötu verður þjónustustjóri einstaklinga. Þetta er fyrsta skrefið í samrunaferli þessarar tveggja fjármálafyrirtækja og verður tilkynnt um næstu skref eins skjótt og auðið er.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira